Fá afslátt fyrir þvagblauta auglýsingu

Skjáskot

Nýjasta auglýsing IKEA í Svíþjóð hefur vakið mikla athygli og ekki er það furða. Sænski húsgagnasmiðurinn býður óléttum konum að pissa á auglýsinguna, sem hefur innbyggt óléttupróf, og fá afslátt í staðinn. 

Greint er frá þessu í frétt AdWeek. Þar kemur fram að í auglýsingunni sem birtist í tímaritinu Amelia sé innbyggt óléttupróf en í stað þess að gefa svarið „já“ eða „nei“ sýnir það hversu mikinn afslátt þú færð. 

Ekki virðist annað koma til greina en að fara með gegnblauta auglýsinguna í IKEA-verslun í Svíþjóð til þess að geta fengið afsláttinn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK