N1 og Hampiðjan hlutskörpust

Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, tók fyrst til máls.
Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, tók fyrst til máls. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eldborgarsalurinn í Hörpu var fullsetinn í dag þegar Creditinfo kynnti listann yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins 2017 og veitti sérstök verðlaun til N1 og Hampiðjunnar. N1 fékk verðlaun fyrir framúrskarandi samfélagslega ábyrgð og Hampiðjan var valin framúrskarandi nýsköpunarfyrirtæki ársins.

Und­an­far­in ár hef­ur Cred­it­in­fo tekið sam­an lista yfir fyr­ir­tæki sem mæta ákveðnum skil­yrðum um ábyrg­an og arðbær­an rekst­ur. Fyr­ir­tæk­in sem mæta þess­um skil­yrðum kom­ast á lista yfir „Framúrsk­ar­andi fyr­ir­tæki“. 

Brynja Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, tók fyrst til máls og lýsti ánægju sinni yfir því að fyrirtækjum á listanum hefði fjölgað í gegnum árin. Sú þróun endurspeglaði uppgang í efnahagslífinu. Hún sagði að jafnframt þyrfti að horfa til fleiri þátta sem ekki væri hægt að mæla jafnauðveldlega og þess vegna hefði Creditinfo ákveðið að veita sérstök verðlaun fyrir samfélagslega ábyrgð og nýsköpun. 

Það var þéttsetið í Eldborgarsalnum.
Það var þéttsetið í Eldborgarsalnum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Við val dómnefndar á fyrirtækinu sem þótti skara fram úr í samfélagslegri ábyrgð var litið til þess hvernig stefnu fyrirtækið hefði mótað sér í málum á borð við umhverfismál og félagsmál. Þá var horft til þess hversu vel því hefði gengið að ná markmiðunum og hvort að það væri fyrirmynd annarra fyrirtækja. 

Eins og áður sagði hlaut olíufélagið N1 verðlaun og var nefnt að N1 hefði náð góðum árangri í umhverfismálum, jafnrétt og ábyrgri stjórnun. Eggert Þór Kristófersson forstjóri sagði sérstaklega ánægjulegt fyrir hefðbundið olíufélag að hljóta verðlaun af þessu tagi. 

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra afhendir Eggerti Þór Kristóferssyni verðlaunin.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra afhendir Eggerti Þór Kristóferssyni verðlaunin. mbl.is/Kristinn Magnússon

Dómnefndin sem valdi það fyrirtæki sem skaraði fram úr í nýsköpun horfði til þátta eins og fjölda einkaleyfa og hvort að nýsköpun væri hluti af daglegu starfi fyrirtækisins. Hampiðjan varð hlutskörpust og tók þróunarstjóri veiðarfæra hjá Hampiðjunni við verðlaununum. 

Guðmundur Gunnarsson, þróunastjóri veiðarfæra hjá Hampiðjunni.
Guðmundur Gunnarsson, þróunastjóri veiðarfæra hjá Hampiðjunni.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK