Ríkissjóður selur 13% hlut í Arion banka til Kaupskila

Arion banki.
Arion banki. mbl.is/Eggert

Fjármálaráðherra hefur, að undangengnu samráði við ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins og ríkisstjórn, fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu á 13% hlut ríkissjóðs í Arion banka til Kaupskila ehf. (dótturfélags Kaupþings ehf.) fyrir 23,4 milljarða króna.

Fram kemur í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu, að salan fafi fram á grunni kaupréttar á hlutnum samkvæmt hluthafasamkomulagi frá árinu 2009 og lögum um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum nr. 155/2012 . Fram kemur að 2. mgr. 1. gr. laganna fjalli sérstaklega um sölu vegna m.a. kaupréttarákvæðisins er tengist Arion banka auk þess sem heimild hafi verið í fjárlögum sem Alþingi hefur samþykkt árlega frá og með fjárlögum ársins 2014.

Kaupskil með ótvíræðan rétt til að kaupa hlut ríkisins

Þá segir, að Bankasýslan fari lögum samkvæmt með eignarhlut ríkissjóðs í bankanum og gæti hagsmuna ríkissjóðs í samræmi við hluthafasamkomulagið. Í tillögu Bankasýslunnar komi fram sú niðurstaða að á grundvelli hluthafasamkomulagsins hafi Kaupskil einhliða, ótvíræðan og fortakslausan samningsbundinn rétt til að kaupa eignarhlut ríkisins.

Ennfremur segir, að í hluthafasamkomulaginu sé kveðið á um hvernig kaupréttarverð skuli reiknað út. Verðið miðist við að hlutafjárframlag ríkisins í bankanum beri ávöxtun sem jafngildir fjármagnskostnaði ríkissjóðs af um 9,9 milljarða kr. hlutafjárframlagi að viðbættu 5% álagi á því tímabili sem ríkissjóður var eigandi að hlutum í bankanum. Til frádráttar kaupréttarverðinu komi arðgreiðslur sem ríkissjóður hafi fengið sem eigandi að bankanum á tímabilinu, en þær námu 2,7 milljörðum kr. Til viðbótar þessum arðgreiðslum fær ríkissjóður nú 23,4 milljörðum kr. vegna kaupréttarins, eða samtals 26,1 milljarður.

Ríkissjóður ekki lengur hluthafi í Arion banka

„Bankasýslan aflaði staðfestingar endurskoðunarfyrirtækisins Grant Thornton á útreikningi kaupverðsins samkvæmt kaupréttarákvæðunum. Að mati Bankasýslunnar er ávöxtun ríkissjóðs, sem lögð er til grundvallar útreikningi á kaupréttarverðinu, góð bæði með tilliti til vaxta og áhættuálags. Útreikningar sýna að árleg meðalnafnávöxtun ríkisins á hlutafjárframlaginu til Arion banka, allt frá árinu 2008, er um 10,8%.

Með þessum málalyktum er ríkissjóður ekki lengur hluthafi í Arion banka. Stjórnvöld munu áfram gæta hagsmuna ríkissjóðs gagnvart bankanum og sölumeðferðar á honum á grundvelli stöðugleikasamninga. Má í því sambandi nefna að ríkið hefur mikla hagsmuni af farsælli sölu Arion banka því slíkt hámarkar virði afkomuskiptasamnings sem er hluti stöðugleikasamninga. Það er mat stjórnvalda að niðurstaðan sé ríkissjóði hagfelld og að hún samrýmist vel áformum ríkisstjórnarinnar um að draga úr eignarhaldi ríkisins á fjármálafyrirtækjum,“ segir í tilkynningunni.

Ávinningur ríkisins metinn á ríflega 150 milljarða

Þá segir, að þrátt fyrir að þessi sala fari fram á grundvelli samningsbundins kaupréttar þá sé rétt að taka fram að verðið sem fáist fyrir eignarhlutinn sé mjög ásættanlegt.

„Ávinningur af fjármögnun ríkisins á Arion banka í kjölfar fjármálakreppunnar haustið 2008 felst í ávöxtun eiginfjár og hreinum vaxtatekjum vegna víkjandi lána sem ríkissjóður veitti Arion og bankinn hefur endurgreitt. Auk þess fær ríkissjóður verulegar tekjur vegna stöðugleikaframlaga Kaupþings, þ.e. vegna skuldabréfs Kaupþings, annarra eigna og áætlaðra tekna samkvæmt afkomuskiptasamningi. Samtals er áætlaður heildarávinningur ríkisins vegna fjárhagslegra hagsmuna í Arion og samskipta við Kaupþing metinn á ríflega 150 ma.kr.

Það er eindreginn ásetningur stjórnvalda að tryggja heilbrigt umhverfi fjármálastarfsemi og treysta umgjörð hennar. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað starfshóp um hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið á Íslandi. Markmið vinnunnar er að skapa traustan grundvöll fyrir umræðu, stefnumörkun og ákvarðanatöku um málefni er varða fjármálakerfið, framtíðargerð þess og þróun. Gert er ráð fyrir því að hópurinn skili skýrslu til ráðherra um miðjan maí nk. sem verði í framhaldinu tekin til umfjöllunar á Alþingi,“ segir í tilkynningu.

Tillaga Bankasýslunnar frá 19. febrúar 2018

Bréf fjármála- og efnahagsráðherra til Bankasýslu ríkisins, 23. febrúar 2018

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK