WOW stærra en Icelandair

WOW air flutti 199 þúsund farþega til og frá landinu í febrúar eða um 19% fleiri farþega en í febrúar árið 2017. Þá var sætanýting WOW air 88% en var 86% í sama mánuði á síðasta ári. Þetta er þrátt fyrir 17% aukningu á framboðnum sætum á milli ára.

Bæði Icelandair og WOW air hafa birt tölur yfir farþegaflutninga fyrir janúar og febrúar og séu þær tölur bornar saman má sjá að WOW air hefur flutt fleiri farþega en Icelandair það sem af er árinu, segir í fréttatilkynningu frá WOW. 

„Febrúar hefur verið krefjandi mánuður sökum veðurs en þökk sé frábæru starfsfólki náðum við góðum árangri og höldum ótrauð áfram,“ segir Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK