United flýgur frá Keflavík til New York

Haldin var opnunarhátíð við hliðið áður en kallað var út …
Haldin var opnunarhátíð við hliðið áður en kallað var út í fyrsta flug United til Newark-flugvallar. Ljósmynd/United Airlines

Bandaríska flugfélagið United Airlines hóf í gær árstíðabundið áætlunarflug sitt á milli Keflavíkur og Newark-flugvallar í New York. Flogið verður daglega til 4. október næstkomandi. Komu fyrsta flugsins var fagnað með vatnsboga á Keflavíkurflugvelli í gær og síðan var haldin opnunarhátíð við hliðið áður en vél United hélt aftur vestur um haf.

„Það er okkur ánægja að hefja árstíðabundið áætlunarflug á milli Keflavíkur og heimahafnar okkar í New York/Newark,“ er haft eftir Bob Schumacher, framkvæmdastjóra sölusviðs United í Bretlandi, á Írlandi og Íslandi, í fréttatilkynningu frá United, en Schumacher segir flugið efla alþjóðleg leiðakerfi félagsins og auk þess valfrelsi íslenskra neytenda, þar sem boðið sé upp á hátt í 70 bein tengiflug frá Newark-flugvelli til áfangastaða í Bandaríkjunum, Kanada, Mexíkó, Karíbahafi og Mið-Ameríku.

Boeing 757-200 vél United Airlines á Keflavíkurflugvelli í gær.
Boeing 757-200 vél United Airlines á Keflavíkurflugvelli í gær. Ljósmynd/United Airlines

Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Isavia á Keflavíkurflugvelli, segir í tilkynningu að það sé mikil ánægja að bjóða United Airlines velkomið í „sístækkandi hóp úrvalsflugfélaga sem fljúga frá Keflavíkurflugvelli.“ Hann segist sjá fram á langt og farsælt samstarf.

Flug United fer frá Keflavík klukkan 11.55 á hverjum degi og lendir í New York/Newark klukkan 14:05 sama dag. Flugið til baka, UA138, fer frá New York/Newark klukkan 22.30 á hverjum degi og lendir klukkan 8:10 daginn eftir. Flugtíminn er 6 klukkustundir og 10 mínútur á vesturleið og 5 klukkustundir og 40 mínútur á austurleið. Vélarnar sem fljúga á þessari leið eru af gerðinni Boeing 757-200, að því er segir í tilkynningu frá United.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK