Ólöglegt samráð í frumniðurstöðu

Gámar á svæði Eimskips.
Gámar á svæði Eimskips. mbl.is/Árni Sæberg

Samkeppniseftirlitið hefur í andmælaskjali sínu komist að þeirri frumniðurstöðu að Eimskip og Samskip hafi haft með sér ólögmætt samráð á rannsóknartímabili málsins gegn fyrirtækjunum á árunum 2008 til 2013 og brotið þannig gegn tíundu grein samkeppnislaga og 53. grein EES-samningsins.

Andmælaskjalið, sem er það fyrra af tveimur, er liður í málsmeðferð rannsóknarinnar. Það felur í sér frummat og er ekki bindandi stjórnvaldsákvörðun, að því er segir í tilkynningu frá Eimskip.

Það er skrifað til að stuðla að því að málið verði að fullu upplýst áður en ákvörðun er tekin og til að auðvelda félaginu að nýta sér andmælarétt sinn samkvæmt  stjórnsýslulögum.

Ekki liggja fyrir upplýsingar um mögulega sektarfjárhæð, komi til hennar.

„Í andmælaskjalinu er frummati Samkeppniseftirlitsins lýst á þeim atvikum málsins þar sem rannsóknin er lengst komin. Telur Samkeppniseftirlitið því rétt að veita félaginu færi á því að koma að skriflegum athugasemdum vegna þessara atvika. Jafnframt stefnir Samkeppniseftirlitið að því að senda félaginu viðbótar andmælaskjal, andmælaskjal II, eins fljótt og unnt er. Félagið hefur ekki upplýsingar um hvenær það verður. Í því verður fjallað um hugsanleg viðurlög og mögulega þörf á fyrirmælum vegna 16. gr. samkeppnislaga. Í andmælaskjali II verður metið hvort gögn eða upplýsingar sem kunna að berast Samkeppniseftirlitinu frá lögreglu eða ákæruvaldi kalli á breytingar á frummati eftirlitsins,“ segir í tilkynningunni.

„Að fengnu andmælaskjali II mun félaginu verða aftur gefinn kostur á að tjá sig um það og málið í heild sinni og eftir atvikum koma að frekari sjónarmiðum vegna efnisatriða andmælaskjals I. Ef athugasemdir, skýringar eða ný gögn þykja gefa tilefni til getur frummat og ályktanir sem fram koma í andmælaskjali I tekið breytingum.“

Eimskip hefur fengið frest til að setja fram andmæli við andmælaskjalið til 7. september.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK