Ný stjórn Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) hefur tekið til starfa. Björn Brynjúlfur Björnsson tekur við formennsku í félaginu af Dögg Hjaltalín en hún hefur verið formaður frá 2014 og var þar áður framkvæmdastjóri þess.
Björn er sjálfstætt starfandi hagfræðingur en vann áður hjá Viðskiptaráði þar sem hann var aðstoðarframkvæmdastjóri. Hann er með BS-próf í verkfræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf í hagfræði frá Oxford.
Þá hefur Katrín Amni Friðriksdóttir hafið störf sem framkvæmdastjóri félagsins. Hún er með BS-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf í lúxusstjórnun frá Domus Academy í Mílanó. Undanfarin ár hefur hún starfað við markaðsmál og ráðgjöf en hún var áður markaðsstjóri Heilsuhússins og Lyfju.
Nýja stjórn veturinn 2018-19 skipa: