Uppstokkun á stjórnarteymi Íslandsstofu

Björgólfur Jóhannsson, nýr stjórnarformaður Íslandsstofu og Jón Ásbergsson, fráfarandi framkvæmdastjóri …
Björgólfur Jóhannsson, nýr stjórnarformaður Íslandsstofu og Jón Ásbergsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Íslandsstofu. Samsett mynd

Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair group, hefur verið skipaður stjórnarformaður Íslandsstofu, en ný stjórn var skipuð í kjölfar breytinga á lögum um stofnunina sem Alþingi samþykkti í vor. Algjör endurnýjun er í stjórninni og koma sjö ný inn í hana. Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, mun að eigin ósk láta af störfum sem framkvæmdastjóri og verður staðan auglýst á næstu dögum.

Stjórn Íslandsstofu eftir þessa breytingu skipa: Björgólfur Jóhannsson, formaður, Hildur Árnadóttir, varaformaður, Ásthildur Otharsdóttir og Jens Garðar Helgason, öll tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins; Áshildur Bragadóttir og Borgar Þór Einarsson, bæði tilnefnd af utanríkisráðherra, og Friðjón R. Friðjónsson, tilnefndur af ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Þau sem hætta í stjórninni eru Sigsteinn Páll Grétarsson, framkvæmdastjóri Arctic Green Energy Corp og formaður stjórnar, Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Gjögurs hf., Baldvin Jónsson ráðgjafi, Birkir Hólm Guðnason framkvæmdastjóri, Hrannar Pétursson ráðgjafi, Inga Birna Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Kosmos & Kaos, og Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentor

Jón hefur verið framkvæmdastjóri Íslandsstofu frá stofnun. Hann mun að beiðni stjórnar starfa áfram hjá Íslandsstofu og vera nýjum stjórnendum til ráðgjafar. Stjórn Íslandsstofu hefur ákveðið að staða framkvæmdastjóra verði auglýst á næstu dögum en þangað til nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn mun Jón gegna starfinu áfram.

Í tilkynningu er haft eftir Björgólfi að spennandi tímar séu fram undan hjá stofnuninni. „Gríðarmargt hefur áunnist á undanförnum árum undir forystu Jóns Ásbergssonar sem hefur unnið óeigingjarnt starf, af miklum metnaði og fagmennsku. Það var eindregin ósk nýrrar stjórnar þegar ljóst var að Jón vildi láta af starfi framkvæmdastjóra að hann myndi áfram ljá okkur krafta sína í nýju hlutverki. Nú horfum við til framtíðar og það er ljóst að breytt rekstrarform gefur okkur tækifæri til að halda áfram að sækja fram af krafti fyrir íslenskt atvinnulíf.“

Hlutverk Íslandsstofu er meðal annars að vera samstarfsvettvangur atvinnulífs, hagsmunasamtaka, stofnana og stjórnvalda um stefnu og aðgerðir til þess að auka útflutningstekjur og hagvöxt. Enn fremur að veita alhliða þjónustu og ráðgjöf til allra útflutningsgreina í því skyni að greiða fyrir markaðssetningu og útflutningi á vöru og þjónustu og að laða erlenda ferðamenn til landsins með samræmdu kynningar- og markaðsstarfi. Þá er Íslandsstofu ætlað að laða erlenda fjárfestingu til landsins og upplýsa erlenda fjárfesta um kosti Íslands og að styðja við kynningu á íslenskri menningu, vörum og þjónustu erlendis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK