Starfsmannaleigur fái vottun

Starfsmannaleigur hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu.
Starfsmannaleigur hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu. mbl.is/Árni Sæberg

Þær starfsmannaleigur sem eru með allt sitt í lagi gætu á næstunni fengið vottun hjá Samtökum atvinnulífsins og Alþýðusambandinu.

Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.

Til þess að hljóta vottunina þyrftu fyrirtækin að sýna fram á að starfsmenn sínir njóti réttra kjara. Samráðsnefnd samtakanna tveggja myndi veita vottunina.

Á meðal skilyrða sem starfsmannaleigurnar þyrftu að uppfylla væri að hafa starfað í að minnsta kosti eitt ár og að hafa ekki brotið lög eða kjarasamninga í þrjú ár.

Einnig þyrftu þær að afhenda yfirlit yfir fjölda starfsmanna, ráðningarsamninga og fleira. Vottunarkerfið er hluti af samkomulagi sem SA og ASÍ gerðu í vor.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK