Segja stöðu vélarinnar óbreytta

Hlynur Halldórsson, lögmaður Isavia, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir helgi.
Hlynur Halldórsson, lögmaður Isavia, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir helgi. mbl.is/Eggert

Isavia telur að greiðsla flug­véla­leigu­fyr­ir­tæk­is­ins ALC, vegna skuldar farþegaþotu sem hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli frá gjaldþroti WOW air, sé hvorki fullnaðargreiðsla vegna skulda WOW air né fullnægjandi trygging.

Þetta segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, við mbl.is.

„Staða málsins er óbreytt,“ segir Guðjón. „Flugvélin er áfram kyrrsett vegna skulda WOW, sem nema rúmum tveimur milljörðum króna,“ bætir hann við.

Í úr­sk­urði Héraðsdóms Reykja­ness frá því á fimmtu­dag sagði að Isa­via væri heim­ilt að aftra brott­för vél­ar­inn­ar vegna þeirra gjalda sem tengj­ast vél­inni sjálfri.

Það félli ekki yfir aðrar skuld­ir WOW air við Isa­via, en kyrr­setn­ing vél­ar­inn­ar átti að vera trygg­ing fyr­ir um tveggja millj­arða skuld WOW air við Isa­via. Skuld­ir þess­ar­ar vél­ar voru hins veg­ar um 87 millj­ón­ir króna.

Guðjón segir að forsendur í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness hafi verið misvísandi og af þeim sökum hafi Isavia kært úrskurðinn til Landsréttar. „Við teljum mikilvægt að fá niðurstöðu í málið á æðra dómstigi.

Vél í eigu ALC í vörslu Isavia á Keflavíkurflugvelli.
Vél í eigu ALC í vörslu Isavia á Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK