Icelandair dregur úr flugframboði í mars og apríl

Vegna frekari samdráttar í eftirspurn og bókunum undanfarna daga, sökum …
Vegna frekari samdráttar í eftirspurn og bókunum undanfarna daga, sökum útbreiðslu kórónuveirunnar, mun Icelandair draga úr framboði á flugi í mars og apríl umfram það sem áður hefur verið tilkynnt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Icelandair mun draga úr framboði á flugi í mars og apríl umfram það sem áður hefur verið tilkynnt vegna frekari samdráttar í eftirspurn og bókunum undanfarna daga. Þessar ráðstafanir verða gerðar til að draga úr áhættu og fjárhagslegum áhrifum á félagið, að því er segir í tilkynningu. Félagið kynnti fyrir helgi að 80 ferðir á þessu tímabili yrðu felldar niður, eða 2% af ferðum félagsins.

Í tilkynningunni núna segir jafnframt að útbreiðsla kórónuveirunnar og viðbrögð við henni hafi nú þegar haft aukin áhrif á ferðahegðun fólks. Icelandair hefur fylgst náið með aðstæðum og greint mögulegar sviðsmyndir og mótvægisaðgerðir í ljósi stöðunnar. 

„Það er ljóst að útbreiðsla COVID-19-veirunnar hefur áhrif á ferðaplön viðskiptavina okkar, í það minnsta til skemmri tíma. Eins og við höfum áður sagt gera sveigjanleiki leiðakerfisins og sterk lausafjárstaða félagsins okkur kleift að bregðast hratt við breyttri stöðu á mörkuðum félagsins,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group, í tilkynningu. 

Ekki liggur fyrir að svo stöddu hversu mikið verður dregið úr flugáætlun félagsins, en 3.500 ferðir eru áætlaðar í mars og apríl. Endanleg breyting á framboði mun ráðast af því hvernig staðan þróast á næstu dögum og vikum. Vinna við þessar breytingar er þegar hafin og uppfærð áætlun félagsins verður birt um leið og hún liggur fyrir. Í kjölfarið verður haft samband við farþega sem þegar eiga bókað flug með félaginu verði breyting gerð á flugi þeirra.

Icelandair mun halda áfram að fylgjast náið með þróun mála og vinna náið með yfirvöldum og fylgja leiðbeiningum þeirra á hverjum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK