Snertilausar greiðslur hækka upp í 7.500 krónur

Stefnt er að því að uppfæra posana í marvöruverslunum fyrir …
Stefnt er að því að uppfæra posana í marvöruverslunum fyrir páska. mbl.is/​Hari

Hámarksfjárhæð greiðslu með snertilausum greiðslukortum hækkar úr 5.000 krónur upp í 7.500 krónur. Til að breytingin taki gildi þarf að breyta hugbúnaði í posum. Byrjað verður að uppfæra posa í matvöruverslunum og apótekum og er gert ráð fyrir að því ljúki fyrir páska. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbanka. 

Hámarkið á uppsafnaðar snertilausar greiðslur, þ.e. þar til slá þarf inn PIN, hækkar úr 10.500 krónum í 15.000 krónur.

„Við mælum með að viðskiptavinir noti símann  sinn til að greiða fyrir vörur og þjónustu enda gilda þá engar fjárhæðartakmarkanir á greiðslum, umfram þær takmarkanir sem eru á kortunum sem greiðslulausnir fyrir síma eru tengdar við.“ Segir ennfremur í tilkynningu. 

Breyting á öllum posum í öðrum verslunum getur tekið 2-3 vikur. Breytingarnar eru gerðar í samvinnu við Valitor, Verifone og VISA. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK