Vala stýrir Veðskuldabréfasjóði ÍV

Vala Hauksdóttir sjóðsstjóri hjá ÍV sjóðum hf.
Vala Hauksdóttir sjóðsstjóri hjá ÍV sjóðum hf.

Vala Hauksdóttir hefur tekið sjóðsstjórn Veðskuldabréfasjóða í rekstri ÍV sjóða hf. Vala hóf störf hjá fyrirtækinu í febrúar sl. og hefur síðan komið að starfsemi sjóða sem sérfræðingur í fjármögnun fasteigna. Vala tók við sjóðstjórn ÍV Skammtímasjóðs í byrjun júní og tekur nú við sjóðstjórn Veðskuldabréfasjóða í rekstri félagsins, VIV I og VIV II.

Í tilkynningu kemur m.a. fram að sjóðirnir séu sérhæfðir hlutdeildarsjóðir sem fjármagna atvinnufasteignir með fjárfestingu í skuldabréfum útgefnum af fyrirtækjum og félögum.

„Ég sé mikil tækifæri í farvatninu þessi og komandi misseri og þá sérstaklega hvað viðkemur verkefnum sem tengjast fjármögnun fyrirtækja. Slík verkefni þarfnast oft aðkomu öflugra samstarfsaðila og við hjá ÍV og ÍV sjóðum getum verið sá aðili. Við viljum vinna með viðskiptavinum okkar og það ætlum við okkur að gera. Fjármögnun í gegnum sjóði er góður valkostur fyrir fyrirtæki og félög" segir Vala Hauksdóttir í tilkynningu frá ÍV sjóðum.

Þar segir ennfremur að Vala sé með mikla reynslu af fasteignaviðskiptum og fjármögnun fasteigna auk þess að hafa komið að almennri fjármögnun og endurskipulagningu fyrirtækja. Vala er með B.Sc og M.Sc gráður í viðskiptafræði og stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands, er með próf í verðbréfaviðskiptum og löggiltur fasteignasali.

ÍV sjóðir hf.  veitir viðskiptavinum sínum þjónustu með því að ávaxta fé í gegnum sjóði um sameiginlega fjárfestingu þar sem áhersla er lögð á árangur í ávöxtun og fagmennsku og virkni í stýringu. Félagið er rekstraraðili verðbréfasjóða, fjárfestingarsjóða og sérhæfðra sjóða, segir ennfremur í tilkynningu ÍV sjóða.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK