Fjármagna 8,3 milljarða sjóð

Frá vinstri: Kjartan Ólafsson, Árni Blöndal, Sigurður Arnljótsson og Margrét …
Frá vinstri: Kjartan Ólafsson, Árni Blöndal, Sigurður Arnljótsson og Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Brunnur Ventures hefur lokið fjármögnun á 8,3 milljarða vísisjóði (e. venture capital fund) sem ber nafnið Brunnur vaxtarsjóður II. Sjóðurinn er fjármagnaður af tíu lífeyrissjóðum og Landsbankanum. Landsbréf munu annast rekstur sjóðsins í samstarfi við ábyrgðaraðilann Brunn Ventures. Sjóðnum er ætlað að fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brunni Ventures í tilefni af fjármögnuninni.

Segir þar að þetta sé annar vísisjóður Brunns Ventures en fyrir sex árum hafi sjóðurinn ýtt úr vör fjögurra milljarða króna sjóði, sem nú sé fullfjárfestur. Sá hafi meðal annars fjárfest í Oculis, DT Equipment, Grid, Laka Power, Nanitor, IMS og Avo Software. 

Markmið sjóðsins er sagt vera að fjárfesta að lágmarki í 12 sprotafyrirtækjum og eru væntingar um að 20 félög verði í eignasafninu. Fjárfest verði fyrir 150 til 350 milljónir króna í hverju félagi. 

Sjá mörg tækifæri

„Mikil þörf er á nýjum vísisjóði hér á landi en lítið hefur verið fjárfest í nýjum sprotum á árinu 2020. Við sjáum mörg tækifæri í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum. Það á meðal annars rætur að rekja til þess að hér á landi er mikið framboð af spennandi fjárfestingakostum enda mikil gróska í nýsköpun á síðustu árum. Okkar fyrri sjóður, Brunnur vaxtasjóður I, gefur góða vísbendingu um að árangur muni nást með þennan nýja sjóð,“ segir Sigurður Arnljótsson, framkvæmdastjóri Brunns Ventures, í tilkynningu.

Þar er jafnframt haft eftir Sigurði að fjárfestingastefna sjóðsins veiti talsvert svigrúm til fjárfestinga en tekið sé mið af eftirfarandi ráðandi þáttum; að fyrirtækið sem fjárfest er í sé gjaldeyrisskapandi, að rekstur fyrirtækja sem fjárfest er í sé vel skalanlegur, að fyrirtæki sem fjárfest er í búi yfir viðunandi samkeppnisforskoti í formi þekkingar, viðskiptaleyndarmáls eða einkaleyfis og að frumkvöðullinn og teymið sem standa að baki fyrirtækjum sem fjárfest er í séu taldir framúrskarandi á sínu sviði.

„Að lokum er lögð áhersla á að fyrirtækið starfi í einhverjum eftirtalinna geira; hugbúnaður og veflausnir, afþreyingariðnaður, hátækni, líftækni, orkuiðnaður, sjávarútvegstækni eða matvælaframleiðsla,“ segir þar jafnframt.

Til vitnis um aukinn áhuga

Jafnframt er haft eftir Helga Þór Arasyni, framkvæmdastjóra Landsbréfa, að stofnun sjóðsins sé „ánægjuleg vísbending um aukinn áhuga fjárfesta á nýsköpun og þeim tækifærum sem felast í því að auka fjölbreytni í íslensku atvinnulífi“.

„Við þökkum hluthöfum Brunns vaxtarsjóðs II það traust sem þeir sýna okkur með áskriftarloforðum í sjóðinn og hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs með öflugum hópi sérfræðinga í nýsköpunarverkefnum hjá Brunni Ventures GP,“ sagði Helgi í tilkynningunni. 

Kom að stofnun CCP

Undir lok tilkynningarinnar er forsagan rifjuð upp:

„Brunnur Ventures var stofnað af Árna Blöndal og Sigurði Arnljótssyni. Árni var meðstofnandi og framkvæmdastjóri hjá netauglýsingafyrirtækinu BePaid.com um aldamótin. Hann stýrði vísisjóðnum Uppsprettu í fimm ár og hefur starfað við fjárfestingar vaxtarfyrirtækja síðan. Sigurður tók meðal annars þátt í að stofna leikjafyrirtækið CCP og var forstjóri þess fyrstu árin. Sigurður hefur komið að uppbyggingu fjölda vaxtarfyrirtækja.  

Samhliða því að koma á fót Brunni vaxtarsjóði II hafa tveir fjárfestingastjórar bæst í hópinn; Kjartan Örn Ólafsson sem er reyndur frumkvöðull og englafjárfestir og starfaði um árabil sem framkvæmdastjóri á viðskiptaþróunarsviði fjölmiðlafyrirtækisins Bertelsmann í New York, og Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, sem starfaði síðustu 6 ár hjá Carbon Recycling International, og var aðstoðarforstjóri þess,“ sagði loks í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK