Eyjólfur Árni gefur kost á sér

Eyólfur Árni Rafnsson, formaður SA.
Eyólfur Árni Rafnsson, formaður SA. mbl.is/Árni Sæberg

Eyjólfur Árni Rafnsson hyggst gefa áfram kost á sér sem formaður Samtaka atvinnulífsins. Hann tók við formennskunni árið 2017.

Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins.

Haft er eftir Eyjólfi Árna að miklar áskoranir séu fram undan í íslensku atvinnulífi:

„Ískyggilegar horfur um langvinnt atvinnuleysi valda áhyggjum. Stærsta áskorun yfirvalda og aðila vinnumarkaðar á komandi misserum verður að vinna á atvinnuleysinu. Þótt efnahagsaðgerðir stjórnvalda hafi mildað höggið sem kórónukreppan olli til skamms tíma, birtast þær sömu aðgerðir í stóraukinni skuldsetningu og hallarekstri ríkissjóðs. Þar kristallast sú staðreynd að umsvif atvinnulífsins og framleiðslugeta hafa allt að gera með stöðu ríkissjóðs sem aftur stendur undir því velferðarkerfi sem íslenskt samfélag reiðir sig á,“ segir Eyjólfur Árni.

Stöndug fyrirtæki forsenda velferðar

„Þessi risavöxnu verkefni verða stærstu viðfangsefni þeirrar ríkisstjórnar sem tekur við eftir kosningar síðar á árinu. Nú er mikilvægt að allir vinni samstíga að því sameiginlega verkefni að skapa störf hjá fyrirtækjum í atvinnulífinu. Leiðin út úr kreppunni er ekki sú að fjölga opinberum störfum. Þvert á móti eru stöndug fyrirtæki forsenda þess að skapa verðmæt störf. Með því að auka súrefni til atvinnulífsins bætum við lífskjör fólks í landinu,“ segir Eyjólfur Árni í samtalinu sem birt er á vef SA.

„Rafræn kosning formanns meðal aðildarfyrirtækja SA fyrir starfsárið 2021-2022 hefst  þann 14. apríl nk. Tilkynnt verður um kjörið á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins þann 12. maí næstkomandi,“ segir þar jafnframt.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK