Peter Short ráðinn tæknistjóri CrankWheel

Peter Short er nýr tæknistjóri (e. CTO) hjá hugbúnaðarfyrirtækinu CrankWheel.
Peter Short er nýr tæknistjóri (e. CTO) hjá hugbúnaðarfyrirtækinu CrankWheel.

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið CrankWheel hefur ráðið Peter Short sem tæknistjóra (CTO). Mun Peter leiða þróun lausna CrankWheel og vinna við viðbætur á vöruframboði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. 

Þar segir einnig að Peter komi til CrankWheel frá hugbúnaðarfyrirtækinu Meniga þar sem hann vann í fjögur ár sem hópstjóri forritara. Þar á undan hafi hann unnið í níu ár hjá Landsbankanum sem Senior Technical Lead og sem forritari við netbankalausnir.

Peter er eins og segir í tilkynningunni upprunalega frá Írlandi en fluttist ungur til Dubai þar sem hann útskrifaðist með BS gráðu í tölvunarfræði frá Wollongong háskóla.

Fyrirliði rúgbí-liðsins

„Peter var um tíma fyrirliði íslenska rúgbí-liðsins en í dag þegar hann er ekki að sinna fjölskyldunni eða vinnunni, týnir hann sér í lestri góðra bóka, spilar á gítar eða fiktar við tölvur," segir í tilkynningu CrankWheel.

Jói Sigurðsson, stofnandi og framkvæmdastjóri CrankWheel segir í tilkynningunni að þekking og reynsla Peters komi vel að notum. „Hann mun styðja undir þann mikla vöxt sem við höfum séð undanfarin ár. Nú getum við gefið út stórar viðbætur oftar og því þróað okkar þjónustu enn meira.”

Gefur símtölum sjónræna dýpt

CrankWheel var stofnað árið 2016 af Jóa Sigurðssyni og Þorgils “Gilsa” Sigvaldasyni. CrankWheel býður upp á skjádeililausn sem varpar skjá notandans yfir á tölvu eða snjalltæki viðtakandans í rauntíma. „CrankWheel er notað til að gefa símtölum sjónræna dýpt og geta viðtakendur séð skjá notandans án uppsetningar eða skráningar. Auk skjádeilingar, geta notendur streymt myndböndum í fullum gæðum og gefið viðtakanda stjórn á skjánum sínum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK