Niceair í fyrsta flug 2. júní

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair.

Niceair, félag um millilandaflug á Akureyri, hefur verið stofnað og er áætlað jómfrúarflug 2. júní næstkomandi. Nafninu Niceair er ætlað að vísa til norður Íslands og mun félagið það sinna „vaxandi markaði svæðisins fyrir bæði heimamenn og erlenda ferðamenn.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Niceair.

„Í upphafi verður flogið til Bretlands, Danmerkur og Spánar en sala hefst á næstu vikum. Félagið hefur fest sér Airbus A319 flugvél með 150 sætum en þessi tegund flugvélar er langdræg og hentar vel fyrir aðstæður á Akureyri ásamt því að hafa gott fraktrými.“

Í tilkynningunni er haft eftir Þorvaldi Lúðvíki Sigurjónssyni, framkvæmdastjóra Niceair að forsendur fyrir flugi til og frá Akureyri hafa breyst verulega frá því sem áður var. 

„Stofnun Niceair kemur í kjölfar tveggja ára rannsóknarvinnu í samvinnu við erlenda og innlenda aðila. Ætlun félagsins er að festa í sessi áætlunarflug allt árið á erlenda áfangastaði frá Akureyrarflugvelli. Þetta mun í senn bæta lífsskilyrði einstaklinga á svæðinu,bæta aðgengi erlendra ferðamanna að Norðurlandi, og síðast en ekki síst stóreykst samkeppnishæfni fyrirtækja á svæðinu.“

Jómfrúarflugið er áætlað í blábyrjun júní.
Jómfrúarflugið er áætlað í blábyrjun júní.

20 störf verða til á Akureyri

Til að byrja með verður flugrekstrarleyfi Niceair í höndum evrópsks flugrekanda.

„Ætla má að um 20 störf muni skapast á Akureyri en áhafnir verða bæði innlendar og erlendar, og launakjör sambærileg þeim sem gerast á íslenskum vinnumarkaði. Þjálfun áhafna mun fara fram bæði á Íslandi og erlendis,“ segir í tilkynningunni.

Þorvaldur Lúðvík segir að félagið sé vel fjármagnað og með öfluga bakhjarla.

„Það er sérstaklega ánægjulegt hversu fjölbreytt breiðsíða fyrirtækja, einstaklinga og stofnana á Norðurlandi hefur flykkt sér að baki félaginu, en KEA, Höldur, Kaldbakur, Norlandair, Armar, Ferðaskrifstofa Akureyrar, Norðurböð,  brugghúsið Kaldi, kælismiðjan Frost, Finnur ehf. og fleiri félög eru meðal hluthafa. Enginn hluthafa er áberandi stór og enginn er yfir 8%. Á næstu misserum verður almenningi og fyrirtækjum boðið að eignast hlutdeild í félaginu.“

Fagna því að fá sitt eigið flugfélag

Þá segir í tilkynningunni að flug Niceair til Akureyrar sé líklegt til að styðja við heilsársþjónustu um allt land. Það hafi lengi verið markmið ferðaþjónustunnar og rannsóknir frá Ferðamálastofu hafi sýnt fram á að 70% endurkomufarþega til Íslands vilji komast beint út á land. 

„Við erum gríðarlega ánægð að fá okkar eigið flugfélag á Akureyrarflugvöll. Hér í norðrinu er ört vaxandi borgarsamfélag sem verður að hafa áætlunarflug á milli landa á helstu áfangastaði fyrir fólk og frakt. Það hefur verið sameiginlegt átak hjá mörgum hagaðilum hér fyrir norðan um langt skeið að byggja upp áfangastaðinn og þetta er afar jákvætt og stórt skref sem við sjáum hér stigið,“ er haft eftir Hjördísi Þórhallsdóttur flugvallarstjóra Akureyrarflugvallar í tilkynningunni.

Þá er haft eftir Þorvaldi Lúðvík að Niceair sjái fram á vöxt á næstu árum. 

Það er mikilvægt að geta gripið tækifæri til frekari vaxtar eftir því sem eftirspurn eykst. Við hlökkum til að taka höndum saman með Íslandsstofu, Markaðsstofu Norðurlands, Austurbrú og stjórnvöldum við að kynna Norður- og Austurland sem nýja áfangastaði á Íslandi.“

Áfangastaðir verða kynntir á næstu vikum og mun sala hefjast strax í kjölfarið á heimasíðu félagsins, www.niceair.is. Bókunarvél Niceair verður tengd Dohop og öðrum erlendum  bókunarvélum sem einfaldar farþegum félagsins að bóka sig beint á milli Akureyrar og áfangastaða erlendis um tengivelli félagsins í Evrópu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK