Vísitala íbúðaverðs hækkað um 22,5% á einu ári

Þjóðskrá segir að birtingu vísitölunnar sé ætlað að varpa ljósi …
Þjóðskrá segir að birtingu vísitölunnar sé ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 844,0 í febrúar og hækkar um 2,5% á milli mánaða.

Síðastliðna þrjá mánuði hækkaði vísitalan um 6,1%, síðastliðna sex mánuði hækkaði hún um 9,6% og síðastliðna tólf mánuði hækkaði hún um 22,5%.

Síðast hækkaði hún um 1,7% á milli mánaða.

Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár.

Íbúðarhúsnæði skipt í flokka eftir stærð 

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis.

Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK