Allir markaðir rauðir

Frá kauphöllinni í New York.
Frá kauphöllinni í New York. AFP

Hlutabréfamarkaðir héldu áfram að lækka um allan heim í gær.

Bandarískir markaðir tóku dýfu niður á við í gær en að sögn greinenda vestanhafs óttast fjárfestar aukna verðbólgu, hækkandi stýrivexti og frekari samdrátt hagkerfisins.

S&P 500-vísitalan lækkaði um 3,9% í gær og hefur nú lækkað um tæp 22% á árinu. Nasdaq-vísitalan lækkaði um 4,7% í gær og Dow Jones um 3%. Lækkunin á heimsvísu hófst þegar markaðir voru opnaðir í Asíu, þar sem helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu um rúmlega 3%.

Í Evrópu hélt lækkunin áfram þar sem markaðir lækkuðu á bilinu 1,5-2,5%. Hækkandi verðbólga, von á hærri stýrivöxtum og áhyggjur fjárfesta af efnahagsmálum vestanhafs hafa þar mikil áhrif.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK