Hraður viðsnúningur íbúðaverðs

Fasteignamarkaðurinn fer kólnandi.
Fasteignamarkaðurinn fer kólnandi. mbl.is

Verðbólguvindar virðast vera teknir að snúast til hagstæðari áttar að mati Samtaka atvinnulífsins.

Ný mæling Þjóðskrár á íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu bendir til þess að fasteignaverð sé að lækka og viðsnúningur sé að eiga sér stað en verðbólgan skýrist að miklu leyti af hækkun íbúðaverðs, að því er fram kemur í tilkynningu frá samtökunum

Túlka tölurnar með fyrirvara

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,4% í ágúst, sem er mesta lækkun vísitölunnar frá því snemma árs 2019 en fasteignaverð hefur aftur á móti hækkað hratt undanfarna mánuði. 

Samtökin telja að almennt skuli varast að lesa of mikið í einstaka mælingar, enda sveiflur töluverðar frá mánuði til mánaðar, en með þeim fyrirvara megi túlka nýjustu mælinguna sem hraðan viðsnúning íbúðaverðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK