Metfjöldi á fundi Kompanís

Baltasar Kormákur Baltasarsson og Stefán Einar Stefánsson á fundi Kompanís …
Baltasar Kormákur Baltasarsson og Stefán Einar Stefánsson á fundi Kompanís í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fjölmennt var á morgunverðarfundi Kompanís, viðskiptaklúbbs Morgunblaðsins, sem haldinn var í Hádegismóum í morgun. Á fundinn mættu um 130 manns en aldrei hefur svo mikill fjöldi mætt á morgunverðarfund hjá Kompaní.

Baltasar Kormákur Baltasarsson, eigandi RVK Studios, var gestur fundarins en Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður ræddi við Baltasar um ferilinn, eftirminnileg augnablik, hindranirnar, Hollywood, kvikmyndageirann á Íslandi og fleira.

Baltasar sagði á fundinum að það hefði ekki verið upphaflega áætlunin að fara í leiklist eða kvikmyndageirann.

„Ég ætlaði að verða dýralæknir og sótti meira segja um það nám í skóla erlendis en síðan æxlaðist það þannig að ég fór í leiklistina.“

Yfir 130 manns sóttu fund Kompanís.
Yfir 130 manns sóttu fund Kompanís. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rifjaði upp ferilinn

Baltasar rifjaði upp aðkomu sína að íslensku kvikmyndunum Englum alheimsins, Djöflaeyjunni, Mýrinni og fleirum. Þá fór hann yfir þær áskoranir sem fylgdu því að reyna að hasla sér völl á erlendri grundu á tímum þar sem fyrirmyndir skorti.

„Á þessum tíma var Björk eiginlega eini Íslendingurinn sem hafði gert það gott á erlendri grundu. En í þessu eins og öðru þarf maður bara að taka eitt skref í einu og muna að skrefin aftur á bak geta líka verið lærdómsrík,“ sagði Baltasar.

Hann sagði að það að gera sína fyrstu kvikmynd hefði verið helsti vendipunkturinn á hans ferli.

„Eftir að ég gerði mína fyrstu kvikmynd þá opnuðust fyrstu dyrnar inn í kvikmyndaheiminn erlendis. Maður verður þó að muna að það er eitt að dyrnar opnist, svo er annað mál hvort maður fúnkeri innan þeirra.“

Baltasar fór yfir helstu áskoranirnar á ferlinum, tengslanet sitt erlendis og Hollywood.

Mörg járn í eldinum

Tilkynnt var á dögunum að Baltasar Kormákur og fyrirtæki hans RVK Studios myndu hafa yfirumsjón með framleiðslu stórrar sjónvarpsþáttaraðar á vegum sjónvarpsstöðvarinnar CBS um Vilhjálm Englandskonung. Baltasar leikstýrir fyrsta þættinum í þáttaröðinni sem tekin verður upp hér á landi eftir áramót.

Baltasar sagði á morgunverðarfundinum að þættirnir yrðu 8 talsins og umfangið væri í kringum 50 milljónir dollara sem samsvarar tæpum 6,9 milljörðum íslenskra króna.

Baltasar hefur undanfarin ár staðið fyrir risavaxinni uppbyggingu kvikmyndavers í Gufunesi.

Á næsta ári kemur út kvikmynd sem byggir á bókinni Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafsson rithöfund, en Baltasar Kormákur kom að gerð myndarinnar.

Baltasar segir að hann sé einnig með fjölmörg önnur verkefni í bígerð en þau séu alls um það bil tuttugu talsins.

„Ég er með mörg verkefni í gangi sem eru öll á mismunandi skala. Ég er meðal annars með sjónvarpsseríur í bígerð bæði innlendar og erlendar. Ég er með samninga við Universal Studios. Ég er einnig að framleiða mynd eftir Jo Nesbo og er að vinna að endurgerð á bæði Ófærð og Eiðnum. Auk þess er ég að vinna með Ríkisútvarpinu að gerð Sjálfstæðs fólks.“

Þá tilkynnti Baltasar jafnframt á fundinum að hann hafi gert samning við tæknirisann Apple.

Í samtali við mbl.is segir Baltasar að hann geti lítið tjáð sig um samninginn en þetta sé þó stærsta verkefnið sem hann hafi unnið að hingað til.

„Þetta er risastórt verkefni sem Apple eru framleiðendur að, en ég má því miður ekki segja meira. Það er kominn samningur en það er ekki búið að tilkynna þetta,“ segir Baltasar.

Öflugur viðskiptaklúbbur

Kompaní er viðskiptaklúbbur Morgunblaðsins og mbl.is og er ætlað að sameina starfandi fólk á Íslandi. Kompaní er vettvangur miðla Árvakurs til að veita viðskiptavinum enn betri þjónustu þar sem hægt er að hlýða á fræðslufundi og fyrirlestra, fylgjast með nýjungum og læra af reynslu annarra sem þekkja hvað það er að reka fyrirtæki á Íslandi.

Á fundinum sem fram fór í morgun gæddu gestir fundarins sér á veitingum frá Finnsson Bistro og eftir samtal Baltasars og Stefán Einars tóku þau Regína Ósk og Ásgeir Páll lagið.

Eins og áður sagði var metþátttaka á fundinum og hér að neðan má sjá myndir frá þessum fjölsótta fundi.

Skúli í Sportís ásamt fleirum.
Skúli í Sportís ásamt fleirum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Jóhann Ágúst Hansen í Gallerí Fold ásamt fleirum.
Jóhann Ágúst Hansen í Gallerí Fold ásamt fleirum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Victor Urbancic hjá Sparibílum.
Victor Urbancic hjá Sparibílum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Skúli hjá Súla Travel.
Skúli hjá Súla Travel. mbl.is/Kristinn Magnússon
Grímur Sigurjónsson hjá Fossberg og Halldór Hreinsson hjá Fjallakofanum.
Grímur Sigurjónsson hjá Fossberg og Halldór Hreinsson hjá Fjallakofanum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Ketill Björnsson hjá Ofnasmiðju Reykjavíkur og Konráð hjá Xprent.
Ketill Björnsson hjá Ofnasmiðju Reykjavíkur og Konráð hjá Xprent. mbl.is/Kristinn Magnússon
Fjölmennt var á fundinum.
Fjölmennt var á fundinum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Magnús E. Kristjánsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Árvakurs.
Magnús E. Kristjánsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Árvakurs. mbl.is/Kristinn Magnússon
Regína Ósk og Ásgeir Páll tóku lagið.
Regína Ósk og Ásgeir Páll tóku lagið. mbl.is/Kristinn Magnússon
Gestir voru leystir út með gjöfum.
Gestir voru leystir út með gjöfum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Veitingar frá Finnsson Bistro.
Veitingar frá Finnsson Bistro. mbl.is/Kristinn Magnússon
Brynjar Húnfjörð hjá Íslandshúsum ásamt fleirum.
Brynjar Húnfjörð hjá Íslandshúsum ásamt fleirum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Ólöf Rún Tryggvadóttir hjá Eylíf og Hildur hjá Rúmföt.is.
Ólöf Rún Tryggvadóttir hjá Eylíf og Hildur hjá Rúmföt.is. mbl.is/Kristinn Magnússon
Selma Dögg Víglundsdóttir hjá Loft og raftæki.
Selma Dögg Víglundsdóttir hjá Loft og raftæki. mbl.is/Kristinn Magnússon
Daníel Hermannsson og Hermann Guðmundsson
Daníel Hermannsson og Hermann Guðmundsson mbl.is/Kristinn Magnússon
Hildur Rut Ingimarsdóttir og Hugrún Ína Högnadóttir.
Hildur Rut Ingimarsdóttir og Hugrún Ína Högnadóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon
Kristófer Óskarsson, Ásvaldur Óskarsson og Guðmundur Sigursteinn
Kristófer Óskarsson, Ásvaldur Óskarsson og Guðmundur Sigursteinn mbl.is/Kristinn Magnússon
Ásta Jóhannesdóttir og Brynjar Húnfjörð.
Ásta Jóhannesdóttir og Brynjar Húnfjörð. mbl.is/Kristinn Magnússon
Linda Wessman og Kolbrún Víðisdóttir
Linda Wessman og Kolbrún Víðisdóttir mbl.is/Kristinn Magnússon
Halldór Hreinsson og Arndís Friðriksen.
Halldór Hreinsson og Arndís Friðriksen. mbl.is/Kristinn Magnússon
Baltasar Kormákur, Stefán Einar, Magnús Kristjánsson og Haraldur Johannessen.
Baltasar Kormákur, Stefán Einar, Magnús Kristjánsson og Haraldur Johannessen. mbl.is/Kristinn Magnússon
Konráð Sigurðsson.
Konráð Sigurðsson. mbl.is/Kristinn Magnússon
Katrín Donn og Ólafur Magnússon.
Katrín Donn og Ólafur Magnússon. mbl.is/Kristinn Magnússon
Vigfús Júlíusson og Kristín Eva Ólafsdóttir.
Vigfús Júlíusson og Kristín Eva Ólafsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon
Auðunn Gylfason og Rósa Viggósdóttir
Auðunn Gylfason og Rósa Viggósdóttir mbl.is/Kristinn Magnússon
Anna Þorleifs og Birna Magnúsdóttir.
Anna Þorleifs og Birna Magnúsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon
Sigurður Smári Gylfason, Jónas Halldór Jónasson og Stefán Antonsson.
Sigurður Smári Gylfason, Jónas Halldór Jónasson og Stefán Antonsson. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK