Íslandshótel stefna á skráningu félagsins í Kauphöll á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var út samhliða ársuppgjöri félagsins. Þar kemur einnig fram að félagið hafi ákveðið að starfsfólki verði afhentir hlutir í Íslandshótelum.
Íslandshótel hagnaðist um rétt tæplega 500 milljónir króna, samanborið við tæplega 94 milljóna króna tap árið áður. Rekstrartekjur félagsins námu 16.784 milljónir króna á síðasta ári, en voru 13.433 milljónir króna árið 2022.
Rekstrarhagnaður Íslandshótela fyrir afskriftir (EBITDA) jókst um 51% milli ára samkvæmt ársreikningi félagsins, var 4.956 milljónir króna á árinu 2023 samanborið við 3.280 milljónir króna árið 2022.
„Íslandshótel sýna styrk sinn vel í þessu uppgjöri. Sterk staða okkar er bein afleiðing af góðum grunni, skynsamlegum rekstri, öflugum hópi starfsmanna og skýrri, umhverfisvænni stefnu. Reksturinn gengur vel og þó ytra umhverfi hafi verið krefjandi á köflum er bjart fram undan, ekki síst þegar horft er til fjölda ferðamanna,“ er haft eftir Davíð Torfa Ólafssyni, forstjóra Íslandshótela, í tilkynningu.
„Við horfum til skráningar í Kauphöll á næstu mánuðum með tilhlökkun og það er ánægjuefni að segja frá því að starfsmenn okkar fá hluti í félaginu afhenta sem þakklætisvott fyrir þeirra framlag.“