Nýr rafbíll frá Kia áberandi á IAA-sýningunni

Nýr Kia EV6 er mjög framúrstefnulegur.
Nýr Kia EV6 er mjög framúrstefnulegur. Ljósmynd/Bílaumboðið Askja

Kia verður mjög áberandi með nýjustu rafbíla sína á alþjóðlegu bílasýningunni IAA Mobility sem haldin verður í fyrsta skipti í Munchen 7-12 september næstkomandi, að því er segir í tilkynningu frá Bílaumboðinu Öskju.

Kia mun frumsýna tvo spennandi rafbíla á sýningunni; glænýjan EV6 rafbíl, sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftirvæntingu, og nýja kynslóð af Sportage sem kemur nú í Plug-in Hybrid útfærslu.

Eigendum nýs Kia EV6 býðst að gera bílinn að sínum …
Eigendum nýs Kia EV6 býðst að gera bílinn að sínum eigin með þar til gerðu smáforriti. Ljósmynd/Bílaumboðið Askja

Sportage í sérstakri Evrópu-útgáfu

Báðir bílarnir þykja sérlega fallega hannaðir og eru til marks um framúrskarandi árangur Kia á hönnunarsviðinu sem skilað hefur bílaframleiðandanum fjölda alþjóðlegra verðlauna.

Kia Sportage er nú framleiddur í sérstakri Evrópu-útgáfu og er þetta í fyrsta skipti í 28 ára sögu Sportage sem það gerist. Þetta er fimmta kynslóð þessa vinsæla sportjeppa sem breytist nú mikið í útliti og hönnun.

Nýr Kia Sportage er glæsilegur ásýndar með sportlegt og nútímalegt útlit sem vekur athygli. Nýr Sportage er með tengiltvinnvél sem samanstendur af 1,6 lítra bensínvél og öflugum rafhlöðum.

Kia EV6 er aflmikill rafbíll sem dregur alls 528 km samkvæmt WLTP staðli. Hægt er að velja um 229 og 325 hestafla rafmótor. EV6 er fyrsti bíll Kia sem byggður er á nýjum og háþróuðum E-GMP undirvagni sem er sérstaklega hannaður fyrir rafbíla. Þessi nýi undirvagn verður notaður í næstu kynslóðir rafbíla hjá Kia.

Forsala á þessum spennandi bíl er þegar hafin og verður hann kynntur hérlendis í nóvember.

mbl.is