Krúttlegustu búningar ársins 2018

Tvíburarnir Mila og Emma klæddu sig upp sem Meghan hertogaynja …
Tvíburarnir Mila og Emma klæddu sig upp sem Meghan hertogaynja og Elísabet Englandsdrottning.

Samfélagsmiðlastjörnurnar Mila og Emma Stauffer eru ekki háar í loftinu en móðir þeirra, Katie Stauffer, sér til þess að fjórar milljónir fylgjast með þeim á Instagram. Á dögunum birti hún mynd af hrekkjavökubúningum þeirra í ár sem vakið hafa mikla lukku. 

Árið 2018 hefur verið ár Harry og Meghan. Af því tilefni voru þær systur klæddar upp sem Meghan hertogaynja og Elísabet Englandsdrottning á brúðkaupsdegi hertogahjónanna af Sussex í maí. Var önnur í hvítum brúðarkjól á meðan hin var drottningin sjálf í myntugrænni kápu með hatt í stíl. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þær Mila og Emma fara í gervi þekktra einstaklinga en móðir þeirra hefur áður klætt þær upp eins og Hillary Clinton og Donald Trump og Kim og Kourtney Kardashian. 

Elísabet Englandsdrottning á brúpkaupsdegi Harry og Meghan.
Elísabet Englandsdrottning á brúpkaupsdegi Harry og Meghan. AFP
Meghan á brúðkaupsdaginn sinn í maí.
Meghan á brúðkaupsdaginn sinn í maí. AFP
View this post on Instagram

My royal Hineys!!👸🏻👑

A post shared by Stauffer Family (@kcstauffer) on Oct 21, 2018 at 2:21pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert