Amy Schumer berar bumbuna

Amy Schumer sýndi óléttukúluna á Instagram.
Amy Schumer sýndi óléttukúluna á Instagram. skjáskot/Instagram

Grínleikkonan Amy Schumer leyfir aðdáendum sínum að fylgjast með sinni fyrstu meðgöngu. Schumer hefur þurft að gera breytingar á vinnu sinni á meðgöngunni en hún lenti meðal annars á spítala vegna mikillar ógleði í síðustu viku. 

Schumer sýndi myndarlega óléttubumbuna á Instagram í gær, mánudag. Þar tilkynnti hún að fresta þyrfti nokkrum uppistandssýningum þar sem læknar hefðu sett hana í ferðabann. Í síðustu viku þurfti hún einnig að fresta sýningum út af spítalainnlögn. 

Sem betur fer líður þó Schumer betur. Henni leið mjög illa í síðustu viku og sagði að annar þriðjungur meðgöngunnar væri ekki skárri en sá fyrsti eins og margir héldu fram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert