Vilhjálmur fékk krúttlegustu gjöfina

Vilhjálmur Bretaprins er 37 ára í dag.
Vilhjálmur Bretaprins er 37 ára í dag. AFP

Vilhjálmur Bretaprins á afmæli í dag og fékk einstaklega krúttlega afmælisgjöf frá börnunum sínum þremur.

Samkvæmt heimildum The Sun útbjuggu börnin, með aðstoð mömmu sinnar, heimatilbúna bók handa pabba sínum. Í bókinni eru ljósmyndir af fjölskyldunni í bland við myndir sem krakkarnir lituðu. 

Katrín, eiginkona Vilhjálms, er sögð hafa geymt bókina heima hjá systur sinni Pippu Middleton, til að Vilhjálmur myndi ekki rekast á hana. Þau hafa unnið saman að bókinni síðastliðið árið. 

Vilhjálmur og Katrín eiga þrjú börn, Georg, Karlottu og Lúðvík.
Vilhjálmur og Katrín eiga þrjú börn, Georg, Karlottu og Lúðvík. AFP
Vilhjálmur og Katrín ásamt Georgi og Lúðvík.
Vilhjálmur og Katrín ásamt Georgi og Lúðvík. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert