Þráði kotasælu og tómata á meðgöngunni

Courtney Cox og dóttir hennar Coco.
Courtney Cox og dóttir hennar Coco. Skjáskot/Instagram

Friends-stjarnan Courteney Cox segir að uppáhaldsmaturinn hennar þegar hún gekk með dóttur sína Coco hafi verið kotasæla og tómatar. 

Cox og 15 ára gömul dóttir hennar Coco ræddu um meðgöngu Cox í stuttu myndbandi til að auglýsa aðra seríu af örþáttaröð Cox, 9 Months with Courteney Cox. Þær ræða um meðgönguna og biður Coco móður sína að segja hvað henni dettur í hug þegar hún heyrir orðin „barn“, „meðganga“ og „móðir“. Cox svaraði krúttleg, hormónar og ást.

Cox á eina dóttur, Coco, og glímdi við ófrjósemi áður en hún varð ólétt af henni. Hún missti fóstur nokkrum sinnum en á endanum tókst henni og þáverandi eignimanni henni David Arquette að búa Coco til með hjálp tæknifrjóvgunar. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert