Hafþór Júlíus tók þátt í steypiboði Kelsey

Hafþór Júlíus birti mynd af sér og Kelsey úr steypiboðinu …
Hafþór Júlíus birti mynd af sér og Kelsey úr steypiboðinu á Instagram. Skjáskot/Instagram

Vöðvatröllið Hafþór Júlíus Björnsson og eiginkona hans, Kelsey Henson, skemmtu sér vel um verslunarmannahelgina en Kelsey fékk óvænt steypiboð. Þau Hafþór og Kelsey eiga von á barni í október og er allt að verða tilbúið. 

Kelsey birti myndir úr boðinu en þau Hafþór eiga von á stráki og var blátt þema kvöldsins. Steypiboð eru þekkt fyrir að vera kvennaboð en Hafþór Júlíus fékk þó að að taka þátt í boðinu að þessu sinni. Hann skoðaði gjafirnar með eiginkonu sinni í boðinu og æfði sig að skipta um bleyju með bundið fyrir augun. 

„Þessar ótrúlegu konur og Hafþór komu mér á óvart með sætu steypiboði í gærkvöldi!“ skrifaði Kelsey á mánudaginn og þakkaði kærlega fyrir sig. 

View this post on Instagram

My beautiful wife is 31 weeks + 2 days pregnant! 😍 I couldn’t be more proud of you @kelc33 ❤️

A post shared by Hafþór Júlíus Björnsson (@thorbjornsson) on Aug 3, 2020 at 4:56am PDT

Þau Hafþór Júlíus og Kelsey eru á fullu að undirbúa sig fyrir komu barnsins og er kerra fyrir barnið meðal annars komin í hús. Verslunin Húsgagnaheimilið greindi frá því að Hafþór Júlíus hefði nælt sér í kerru hjá þeim.

Hafþór Júlíus kom við hjá okkur og nældi sér í nuna DEMI Grow barnakerruna enda ein flottasta kerran á markaðnum í dag,“ stendur á Facebook-síðu verslunarinnar og gaf vöðvatröllið leyfi fyrir myndbirtingu.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert