Á tímum heimsfaraldurs hefur gefist nægur tími til þess að búa til börn. Þessar íslensku stjörnur eiga von á barni árið 2021.
Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór og fegurðardrottningin Alexandra eiga von á sínu fyrsta barni á næsta ári.
Fjölmiðlafólkið Viktoría og Sóli Hólm á von á fimmta barninu á næsta ári. Fyrir eiga þau eina dóttur saman og Viktoría eina dóttur og Sóli tvo syni.
Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann og Kristín Eva eiga von á öðru barni á næsta ári. Þau eignuðust dóttur í febrúar á síðasta ári.
Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal og kærasta hans Rakel eiga von á öðru barni á næsta ári. Fyrir eiga þau soninn Theódór sem varð eins árs á þessu ári.
Tónlistarkonan Karitas Harpa og sambýlismaður hennar Aron Leví eiga von á þriðja barninu á næsta ári. Þau eiga saman einn son og fyrir átti Karitas einn son.
Bardagakappinn Jón Viðar og kærasta hans Sigríður eiga von á sínu fyrsta barni saman en fyrir á Jón Viðar einn son.
Stjörnu-Sævar og kærasta hans Þórhildur eiga von á sínu fyrsta barni á næsta ári.
Edda Hermanns og Rikki Daða eiga von á sínu fyrsta barni saman en fyrir á Edda tvö börn og Rikki eina dóttur.
Heiðar Austmann og kærasta hans Kolfinna ætla heldur betur að stækka fjölskylduna á næsta ári. Þau eiga von á fjórða barninu.
Hlaupadrottningin Elísabet og kærasti hennar Páll eiga von á ævintýrakríli í febrúar.
Einkaþjálfarinn Egill og Gurrý Jóns eiga von á sínu öðru barni á næsta ári. Fyrir eiga þau dótturina Evu Malen en nú eiga þau von á syni.