Átta ára íslensk stúlka valin besta leikkonan

Margrét Júlía Reynisdóttir og Kristín Erla Pétursdóttir eru báðar búnar …
Margrét Júlía Reynisdóttir og Kristín Erla Pétursdóttir eru báðar búnar að vinna til verðlauna fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Birtu.

Hin átta ára gamla leikkkona Margrét Júlía Reynisdóttir var valin besta unga leikkonan á KIKIFe, einni stærstu barnakvikmyndahátíð í suður Þýskalandi. Verðlaunin hlaut hún fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Birtu, en þar fer hún með hlutverk Kötlu, litlu systur Birtu. 

Þetta eru önnur verðlaunin á rúmri viku sem kvikmyndin Birta hlýtur en aðalleikkona myndarinnar Kristín Erla Pétursdóttir, 12 ára sem leikur sjálfa Birtu var valin besta leikkonan á Schlingel barnamyndahátíðinni hinn 16. október síðastliðinn.

KIKIFe hátíðin hefur í sinni 30 ára sögu skipað sér stóran sess í þýska kvikmyndaiðnaðinum. Á hátíðinni eru sýndar hágæða kvikmyndir hvaðanæva að úr heiminum og sex þeirra komast í forval um verðlaunasæti.

Birta í leikstjórn Braga Þórs Hinrikssonar verður frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi þann 5. nóvember n.k. og á Símanum Premium 25. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert