Horfðu saman á North spila körfubolta

Fyrrverandi hjónin Kim Kardashian og Kanye West.
Fyrrverandi hjónin Kim Kardashian og Kanye West. AFP

Fyrrverandi hjónin Kim Kardashian og Kanye West hittust um liðna helgi, þegar þau mættu hvort í sínu lagi til að fylgjast með elstu dóttur sinni, North, spila körfuboltaleik. Körfuboltaleikurinn fór fram í íþróttahúsi í bænum Thousand Oaks í Kaliforníu og miðað við myndirnar sem náðust af fyrrverandi hjónunum virtist allt leika í lyndi þeirra á milli.  Er þetta í fyrsta sinn sem til þeirra hefur sést saman opinberlega eftir að upp úr hjónabandi þeirra slitnaði.

Þrátt fyrir að þau hafi ekki setið þétt við hlið hvors annars sátu þau samt í nálægð hvort við annað og virtust eiga í vingjarnlegum samskiptum. Við hlið Kardashians sat góðvinur hennar, Tracy Romulus, sem West hefur hingað til ekki haft mikið dálæti á, eftir því sem fram kemur á fréttamiðlinum Daily Mail

Ágreiningur hefur lengi verið á milli Kardashians og Wests en hann hefur átt erfitt með að sætta sig við hjónaskilnaðinn. Þá hefur hann einnig glímt við geðhvörf, sem hefur gert það að verkum að hann er ýmist haldinn oflæti eða í geðlægð. Ýmis óuppgerð mál hafa augljóslega verið lögð til hliðar um stund og foreldrarnir ákveðið að sameinast í kringum börn sín fjögur; North, Psalm, Chicago og Saint.  

Kærasti Kardashians var vant við látinn en hann er staddur í Ástralíu um þessar mundir sökum vinnu sinnar. Hafa fjölmiðlar vestanhafs velt því fyrir sér að mögulega flytji Kardashian til Ástralíu tímabundið til að vera sem næst Davidson. Ekkert hefur enn fengist staðfest um þær vangaveltur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert