Ingileif og María eiga von á barni

María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir eiga von á barni.
María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir eiga von á barni.

Hjónin Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir eiga von á barni. Barnið er annað barn þeirra saman, en það þriðja sem bætist í fjölskylduna því saman hafa þær alið upp son Maríu úr fyrra sambandi. 

Ingileif er leikstjóri hjá Ketchup Creative en María Rut er kynningarstýra UN Women. 

„Fjölskyldan stækkar og hjörtun með. Síðan í sumar höfum við átt leyndarmál sem er orðið frekar erfitt að fela svo hér með kynnum við til leiks: Plómu! ..það var semsagt það sem Rökkvi ákvað að litla barnið í mallanum á mömmu I ætti að heita. Plóma mætir til leiks í mars og við getum ekki beðið,“ skrifa þær á Instagram.

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert