Bardagakappinn Gunnar Nelson og sambýliskona hans, Fransiska Björk Hinriksdóttir, eiga von á barni. Fyrir á parið eina dóttur saman en Gunnar á einnig son úr fyrra sambandi.
„Áætluð koma þriðju krúttmúsarinnar er í ágúst,“ skrifaði parið á samfélagsmiðla sína og deildi myndum af spenntum systkinum með sónarmynd.
Parið birti einnig Gunnar slá golfkúlu þannig að bleiki kynjaliturinn sprakk. Svo virðist sem að þau eigi aftur von á stúlku saman.
Barnavefurinn óskar þeim til hamingju!