Áfangastaðir klassísku Hollywood

Brigitte Bardot kom St.Tropez á kortið.
Brigitte Bardot kom St.Tropez á kortið. ljósmynd/Istock

St. Tropez var lítill fiskimannabær þegar heimsbyggðin uppgötvaði hann en það var Brigitte Bardot sem kom honum á kortið en hún, sem var mikill aðdáandi St. Tropez, keypti hús þar árið 1958. Í kjölfarið varð þessi litli strandbær á frönsku riveríunni að eins konar skemmtistað fræga fólksins á sumrin og enn er hann heimsóttur af stórstjörnum.

Brigitte í bátsferð með vini í St.Tropez.
Brigitte í bátsferð með vini í St.Tropez. Ljósmynd/Istock

Á norðausturströnd Jamaíka er borgin Port Antonio sem Hollywood-kvikmyndir 5. og 6. áratugarins gerðu fræga. Staðurinn öðlaðist svo aftur frægð í síðari tíma kvikmyndum eins og Coctail og Blue Lagoon.

Port Antonio á Jamaika þykir einstaklega fallegur staður.
Port Antonio á Jamaika þykir einstaklega fallegur staður. Ljósmynd/mikkm

Bette Davis hélt mikið upp á staðinn sem státar enn af sömu náttúrufegurð og þá og býður upp á sýnishorn af öllu því besta sem Jamaíka hefur. Mæla má með The Trident Hotel til að komast í smá kvikmyndastjörnuskap.

Bette Davis hélt mikið upp á Port Antonio.
Bette Davis hélt mikið upp á Port Antonio. Ljósmynd/GettyImages

Til að fara af fullri alvöru aftur í tímann, þar sem vikapiltar í jakkafötum að hætti 6. áratugarins færa þér síðdegiste og þú sækir golfnámskeið milli þess sem þú sólar þig með lekkeran kokteil er áfangastaður þinn höfuðborg Bermuda, Hamilton.

Hamilton, höfuðborg Bermuda.
Hamilton, höfuðborg Bermuda. Ljósmynd/Thinkstock

Hægt er að velja á milli ótal lúxusgistimöguleika sem eiga það sameiginlegt að hafa breyst lítið í gegnum tíðina og hafa viðhaldið vel sínum klassíska glamúr. Stjörnurnar fara enn í frí til Bermuda en meðal þeirra sem eyddu dágóðum tíma þar á áratugum áður er Christopher Plummer.

Christopher Plummer dvaldi reglulega á Bermúda.
Christopher Plummer dvaldi reglulega á Bermúda. Ljósmynd/Getty Images

Ástarsaga síðustu aldar hófst í Mexíkó, í litlu fiskiþorpi, Puerto Vallarta við Banderas-flóa, en þar felldu Richard Burton og Elizabeth Taylor hugi saman en þau höfðu þó þekkst í tvö ár.

Richard og Elizabeth dvöldu á Casa Kimberly-hótelinu en þar er …
Richard og Elizabeth dvöldu á Casa Kimberly-hótelinu en þar er enn þann dag í dag hægt að gista í svítunni þeirra. Ljósmynd/Istockphoto

Þarna hitnaði í kolunum enda ekki erfitt að verða ástfanginn á þessum fagra stað. Þau dvöldu á Casa Kimberly, hóteli sem er enn starfandi og býður meðal annars upp á að gista í svítunni þeirra.

Richard Burton og Elizabeth Taylor felldu saman hugi í Mexíkó.
Richard Burton og Elizabeth Taylor felldu saman hugi í Mexíkó. Ljósmynd/Wikimedia

Sikiley var í sérstöku eftirlæti hjá Gretu Garbo en þar dvaldi hún á hverju sumri til fjölda ára og þá í húsi í þorpinu Taormina á austurströndinni, mjög nærri eldfjallinu Etnu.

Töfrar Sikileyjar hafa löngum laðað að ferðamenn.
Töfrar Sikileyjar hafa löngum laðað að ferðamenn. mbl.is/RAX

Garbo dvaldi þar undir dulnefninu Miss Harriet Brown og reyndi að fara leynt en stór hluti bæjarbúa vissi að þetta var hún og lét hana í friði og lét fjölmiðla ekki vita. Sérstaklega má mæla með að gista á Casa Cuseni B&B en þar eru herbergin nefnd eftir því frægðarfólki sem elskaði þorpið, meðal annars Garbo.

Greta Garbo var ein af þeim sem heilluðust af Sikiley.
Greta Garbo var ein af þeim sem heilluðust af Sikiley. Ljósmynd/Getty Images

Áður en allt hljóp í bál og brand milli Bandaríkjanna og Kúbu var Kúba, og þá sérstaklega Havana og Hotel Nacional, í eftirlæti hjá stjörnum eins og Frank Sinatra og Nat King Cole.

Nacional-hótelið á Kúbu hefur löngum verið vinsælt.
Nacional-hótelið á Kúbu hefur löngum verið vinsælt. Ljósmynd/Istockphoto

Þessa retró Hollywood-stemningu er enn að finna á því hóteli sem er til í dag og einnig er hægt að fanga hana á hótelum eins og Hotel Saratoga sem er í miðju gömlu Havana.

Frank Sinatra var afskaplega hrifinn af Kúbu.
Frank Sinatra var afskaplega hrifinn af Kúbu. Ljósmynd/Imdb

Segja má að líf kvikmyndastjörnunnar og prinsessunnar af Mónakó, Grace Kelly, hafi verið í ferðatöskum eftir að hún giftist Rainier 3. fursta af Mónakó. Þau áttu nokkra eftirlætisstaði, þar á meðal Mallorka en þangað fóru þau einnig í sitt fyrsta ferðalag saman, í brúðkaupsferðina.

Grace Kelly og Rainier furstinn af Mónakó.
Grace Kelly og Rainier furstinn af Mónakó. Ljósmynd/Getty Images

Þau eyddu þá góðum tíma á norðurströnd Mallorka, á Formentor-hótelinu. Það hótel var vinsælt hjá fleiri stórstjörnum svo sem Charlie Chaplin og Fred Astair. Hótelið er í nágrenni Port de Pollensa og enn er hægt að panta konunglegar nætur þar. Útsýnið úr hótelgluggunum er óviðjafnanlegt.

Hjónin heilluðust af spænsku eyjunni Mallorka.
Hjónin heilluðust af spænsku eyjunni Mallorka. Ljósmynd/Wikimedia
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert