Beraði bossann í áhrifavaldasvítunni

Þór­unn Ant­on­ía Magnús­dótt­ir slakaði í Demantasvítunni.
Þór­unn Ant­on­ía Magnús­dótt­ir slakaði í Demantasvítunni. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Þór­unn Ant­on­ía Magnús­dótt­ir gerði vel við sig í byrjun vikunnar og gisti í áhrifavaldasvítunni Diamond Suites í Keflavík. Svítan er þekkt fyrir að vera afar vinsæl meðal áhrifavalda. 

„Það var svo ótrúlega nærandi að vakna á hóteli eftir langa vinnutörn af árshátíðar giggum, Partý Karaoke og popp laga prógrommum seinustu viku,“ skrifaði Þórunn Antonía á Instagram. Hún kunni svo vel við sig að hún sagðist hafa viljað staldra lengur við. 

Þórunn birti meðal annars myndir af sér inni í glæsilega innréttaðri svítunni auk þess sem hún birti bossamynd af sér í heitapottinum en heitir pottur er á svölunum. 

Svítan sem er kennd við demanta er í miklu uppáhaldi hjá fræga fólkinu á Instagram. Birgitta Líf Björnsdóttir hefur gist í svítunni sem og Lína Birgitta Sig­urðardótt­ir, Tanja Ýr Ástþórs­dótt­ir og Egill Halldórsson. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert