Alvöru partí í mekka kórónuveirunnar

Það var heitt á toppnum í Ischgl enda skein sólin …
Það var heitt á toppnum í Ischgl enda skein sólin skært nánast allan tímann. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir

Árlega skíðaferðin í ár var til austurríska skíðabæjarins Ischgl sem staðsettur er í suðvesturhluta Austurríkis í Tíról-héraði.

Bærinn er staðsettur í 1.377 metra hæð yfir sjávarmáli en hæsti tindur skíðasvæðisins er í 2.872 metra hæð og því getur maður verið nokkuð öruggur með góð snjóalög á svæðinu.

Útsýnið á toppnum er vægast sagt magnað.
Útsýnið á toppnum er vægast sagt magnað. Ljósmynd/Höskuldur Elefsen
Það er alltaf stuð og stemning í Ölpunum.
Það er alltaf stuð og stemning í Ölpunum. mbl.is/Bjarni Helgason
Það er frábært að skíða utanbrautar á svæðinu.
Það er frábært að skíða utanbrautar á svæðinu. mbl.is/Bjarni Helgason
Það er óhætt að mæla með því að fólk taki …
Það er óhætt að mæla með því að fólk taki með sér fjallaskíði og fjallabretti til Ischgl. Ljósmynd/Höskuldur Elefsen

Skíðasvæðið er á meðal þeirra stærstu í heiminum og telur alls 239 kílómetra af skíðaleiðum í öllum regnbogans litum.

Skíðasvæðið er á líka á landamærum Austurríkis og Sviss og því hægt að skíða á milli landanna og enda í svissneska alpabænum Samnaun.

Að skíða yfir til Sviss er góð skemmtun.
Að skíða yfir til Sviss er góð skemmtun. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir
Lyftukerfið í Ischgl er frábært.
Lyftukerfið í Ischgl er frábært. mbl.is/Bjarni Helgason
Útsýnið í Ölpunum svíkur engan.
Útsýnið í Ölpunum svíkur engan. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir
Að renna sér á skíðum og snjóbretti er góð stemning.
Að renna sér á skíðum og snjóbretti er góð stemning. mbl.is/Bjarni Helgason

Lyfturnar á svæðinu eru í kringum 45 talsins og er lyftukerfið og samgöngumátinn á meðal þeirra bestu sem undirritaður hefur upplifað.

Það hefur kannski ekki farið mikið fyrir því en Ischgl er frábært utanbrautarsvæði, fyrir þá sem hafa áhuga á slíku og ég mæli þá eindregið með því að fólk taki með sér annað hvort fjallaskíði eða fjallabretti til þess að auðvelda sér bröltið.

Kláfurinn frá Samnaun er magnað mannvirki.
Kláfurinn frá Samnaun er magnað mannvirki. Ljósmynd/Höskuldur Elefsen
Það er mikilvægt að skemmta sér vel í kláfinum.
Það er mikilvægt að skemmta sér vel í kláfinum. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir
Snjórinn var ansi djúpur í Ischgl.
Snjórinn var ansi djúpur í Ischgl. mbl.is/Bjarni Helgason
Það verður enginn svikinn af góðri púðurveislu í Austurríki.
Það verður enginn svikinn af góðri púðurveislu í Austurríki. mbl.is/Bjarni Helgason

Ischgl komst í heimsfréttirnar árið 2020 þegar kórónuveirufaraldurinn reið yfir heimsbyggðina þar sem yfirvöld í Tíról voru meðal annars sökuð um að leyna smitum á svæðinu.

Talið er að fjöldi Evrópubúa hafi smitast í austurríska alpabænum, þannig borið veiruna með sér til heimalands síns og þaðan hafi faraldurinn dreift sér um alla Evrópu.

Um 2.700 ferðamenn höfðuðu meðal annars málsókn á hendur ráðamönnum í Tíról fyrir að hundsa viðvaranir vegna veirunnar og að bregðast of seint við eftir að ljóst var að fjöldi ferðamanna í bænum var smitaður af veirunni.

Skemmtistaðurinn Kitzloch varð heimsfrægur á einni nóttu.
Skemmtistaðurinn Kitzloch varð heimsfrægur á einni nóttu. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir
Það er mikilvægt að skála mjög reglulega í Ölpunum.
Það er mikilvægt að skála mjög reglulega í Ölpunum. Ljósmynd/Ingvar Júlíus Guðmundsson
Skál.
Skál. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir
Skál.
Skál. Ljósmynd/Hinrika Bjarnadóttir

Áður en kórónuveirufaraldurinn skaut upp kollinum var stundum talað um Ischgl sem „Ibiza alpanna“ en í dag tala margir um bæinn sem mekka kórónuveirunnar.

Forráðamenn í Tíról hafa unnið hörðum hönum að því að bæta ímynd bæjarins undanfarin ár en fyrir þá sem hafa áhuga á góðu partíi þá er algjörlega óhætt að mæla með Ischgl.

Það er nóg af svokölluðum „aprés ski“ stöðum þar sem hægt að er að dansa fram á rauða nótt. Undirritaður mælir sérstaklega með Trofana Alm þar sem tónlistin er alltaf í botni, eftir klukkan 20 á kvöldin og Kuhstall er einnig frábær, þó lítill sé. 

Kuhstall er vinsæll áfangastaður í Ischgl.
Kuhstall er vinsæll áfangastaður í Ischgl. Ljósmynd/Ásta Dagmar Jónsdóttir
Trofana Alm er líka vinsæll áfangastaður í bænum.
Trofana Alm er líka vinsæll áfangastaður í bænum. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir
Stuð og stemning á Trofana Alm.
Stuð og stemning á Trofana Alm. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir
Fire and Ice er vinsæll skemmtistaður í Ischgl.
Fire and Ice er vinsæll skemmtistaður í Ischgl. Ljósmynd/Ásta Dagmar Jónsdóttir
Kvöldin á Trofana Alm sviku engan.
Kvöldin á Trofana Alm sviku engan. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir

Ég var að fara í mínu fyrstu skíðaferð til Ischgl og ég get með góðri samvisku sagt að þangað fer ég alltaf aftur, jafnvel oftar en tvisvar og jafnvel oftar en tíu sinnum.

Skíðasvæðið hentar eintaklega vel fyrir alla, hvort sem þú ert byrjandi á skíðum eða mjög reyndur skíðamaður. 

Skíðaleiðin niður til Samnaun í Sviss er frábær skemmtun.
Skíðaleiðin niður til Samnaun í Sviss er frábær skemmtun. mbl.is/Bjarni Helgason
Það er fullt af fínum veitingastöðum í fjallinu.
Það er fullt af fínum veitingastöðum í fjallinu. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir
Í skíðaferð eru allir vinir.
Í skíðaferð eru allir vinir. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir
Skál.
Skál. Ljósmynd/Ásta Dagmar Jónsdóttir

Bærinn er frábær; lítill og þægilegur og það er allt í göngufæri. Þar er líka mikið af góðum veitingastöðum sem er ekki sjálfgefið í Austurríki.

Svo er partíið líka geggjað, fyrir þá sem hafa gaman að því að sletta vel úr klaufunum eftir langan dag í fjallinu. Mér er því algjörlega óhætt að mæla með „Ibiza alpanna“.

Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram.

Það er óhætt að mæla með Ischgl fyrir alla.
Það er óhætt að mæla með Ischgl fyrir alla. mbl.is/Bjarni Helgason
Púðurveisla.
Púðurveisla. mbl.is/Bjarni Helgason
Sleðafjör úr Silverettabahn-kláfinum.
Sleðafjör úr Silverettabahn-kláfinum. Ljósmynd/Camilla Rut Rúnarsdóttir
Það er gaman á sleða.
Það er gaman á sleða. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir
Lokaspretturinn á sleðabrautinni.
Lokaspretturinn á sleðabrautinni. Ljósmynd/Anna Lilja Lýðsdóttir
Það er gaman að skíða utanbrautar í Ischgl.
Það er gaman að skíða utanbrautar í Ischgl. Ljósmynd/Anna Lilja Lýðsdóttir
Skálað fyrir góðum degi.
Skálað fyrir góðum degi. Ljósmynd/Anna Lilja Lýðsdóttir
Brunað í frábæru umhverfi.
Brunað í frábæru umhverfi. Ljósmynd/Anna Lilja Lýðsdóttir
Stuð á Trofana Alm.
Stuð á Trofana Alm. mbl.is/Bjarni Helgason
Það er gaman á skíðum.
Það er gaman á skíðum. Ljósmynd/Ingvar Júlíus Guðmundsson
Ástin blómstrar í Ischgl.
Ástin blómstrar í Ischgl. Ljósmynd/Helga Kristín Jóhannsdóttir
Best klæddi maðurinn í Ischgl.
Best klæddi maðurinn í Ischgl. mbl.is/Bjarni Helgason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert