Á fleygiferð eftir barnsburð

mbl.is/skjáskot

Söngstjarnan Cheryl, fyrrverandi liðsmaður stúlknabandsins Girls Aloud, hefur vakið mikla athygli upp á síðkastið en hún þykir hafa komið sér í hörkuform á skömmum tíma, aðeins ári eftir barnsburð. Hún og Liam Payne, sem er hvað best þekktur fyrir að vera fyrrverandi liðsmaður hljómsveitarinnar One Direction, eignuðust saman soninn Bear í mars á síðasta ári.

Cheryl vinnur nú að sinni fimmtu sólóplötu, en áður hefur hún gefið út 3 Words, Messy Little Raindrops, A Million Lights og Only Human. Hin nýbakaða móðir segist reiðubúin að snúa sér aftur að tónlistinni eftir árshlé. Jafnframt hyggst Cheryl endurheimta sína hefðbundnu fegurðarrútínu. „Sonur minn er nú orðinn eins árs og mér fannst tími til kominn að fara aftur af stað. Ég fékk útbrot í andlitið meðan ég var ólétt og þótti gott að geta loksins lagað það. Það tók mig u.þ.b. sex mánuði að komast í mitt gamla far – þá leið mér eins og ég væri mennsk á ný.“

Aðspurð hvort hún efist einhvern tímann um eigið útlit: „Gerum við það ekki öll? Ég hef oft vaknað á morgnana vitandi að ég eigi að mæta í tökur síðar um daginn og hugsað með mér: Hvers vegna hef ég ekkert farið í ræktina síðastliðinn mánuð? Þessi tilfinning er heldur ömurleg svo ég reyni eftir fremsta megni að hugsa ekki þannig. En jú, vissulega hef ég upplifað þetta eins og svo margur annar.“

Cheryl stödd í Cannes á dögunum:

Cannes 💙😝

A post shared by Cheryl (@cherylofficial) on May 12, 2018 at 5:46am PDT



Feðgarnir, Liam Payne og Bear:

 Frétt þessi er unnin úr HelloMagazine

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert