Logandi hrædd um að verða slæm móðir

Söngkonan Pink hræddist það að verða slæm móðir.
Söngkonan Pink hræddist það að verða slæm móðir. AFP

Tónlistarkonan Pink segist hafa verið logandi hrædd við að verða slæm móðir. Áður en hún eignaðist börnin sín, dótturina Willow og soninn Jameson með eiginmanni sínum Carey Hart, höfðu margir sagt henni að ferill hennar sem söngkona væri búinn ef hún eignaðist börn. 

Pink hefur þó ekki lagt söngferilinn á hilluna þrátt fyrir að eiga börn sem eru orðin 11 og 6 ára gömul og elskar líka að vera mamma. 

„Ég vissi ekki hvort ég myndi eignast fjölskyldu. Ég sá það ekki fyrir mér, því ég var logandi hrædd um að ég yrði hræðileg móðir. En Guð minn góður, að vera mamma er það allra besta sem ég hef gert, það er í raun sjokkerandi hversu ábyrgðarfull ég er orðin,“ sagði Pink í viðtali við People

„Ég sá um veitingar fyrir körfuboltaleik síðustu helgi. Ég er að fara fylgja Willow í dans næsta föstudag. Hver er ég?“ sagði söngkonan á léttu nótunum og bætti við að hún elskaði þetta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert