Fimmtugur og á von á fimmta barninu

Hjónin hafa verið gift frá árinu 2015.
Hjónin hafa verið gift frá árinu 2015. Skjáskot/Instagram

Breski söngvarinn Peter Andre og eiginkona hans, Emily MacDonagh, eiga von á sínu þriðja barni saman. Fyrir eiga hjónin tíu ára dóttur og sex ára son. 

Andre, sem gerði garðinn frægan með laginu Mysterious Girl, deildi gleðitíðindunum með fylgjendum sínum á Instagram í morgun. Söngvarinn birti mynd af sér og MacDonagh brosandi með sónarmyndir. 

„Við erum í skýjunum að deila þessu með ykkur,“ skrifaði Andre. „Fjölskyldan stækkar árið 2024. Krakkarnir eru svo spenntir og við að sjálfsögðu líka.“

Er þetta fimmta barn söngvarans en hann á einnig tvö börn með glamúrfyrirsætunni Katie Price. Andre og Price voru gift á árunum 2005 til 2009. 

View this post on Instagram

A post shared by Peter Andre (@peterandre)

View this post on Instagram

A post shared by Peter Andre (@peterandre)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert