Skera sig fyrir Bieber

Herferð á Twitter sem miðar að því að fá aðdáendur Justins Biebers til að skera sig til að ná athygli söngvarans, hefur vakið óhug margra í vikunni.

Ekki er vitað hver stendur að baki þessari óhugnanlegu herferð sem fyrst var sett fram í háði á vefnum 4Chan.org en hugsanlega tóku einhverjir aðdáendur poppstjörnunnar  hana alvarlega og hafa skorið sig í handleggina, myndað verknaðinn og birt myndirnar á samfélagsvefjum.

Herferðin falska hefur einkennisheitið #Cut4Bieber og átti markmið hennar að vera það að fá aðdáendur Biebers til að bregðast við slæmri hegðun söngvarans sem m.a. var gómaður við meintar kannabisreykingar nýverið.

„Byrjið á því að skera ykkur fyrir Bieber-herferðina,“ sagði í upphaflegu færslunni um herferðina, að því er fram kemur í frétt Billboard og <a href="http://www.nydailynews.com/cut4bieber-trending-topic-draws-shock-outrage-article-1.1235624">sagt er frá á vef Dailynews. </a>

„Tístið fullt af myndum af fólki að skera sig og segið að við gerum þetta af því að Bieber var að reykja gras. Sjáið hvort við getum fengið litlar stelpur til að skera sig,“ stóð ennfremur í færslunni.

Myndir sem virðast vera af slíkum skurðum hafa í kjölfarið birst á Twitter og valdið mörgum miklum áhyggjum.

Meðal þeirra sem hvatti fólk til að hætta þessu rugli var söng- og leikkonan Miley Cyrus.

Herferðinni var hrundið af stað í athugasemdakerfi á vefnum 4Chan.org og er sambærileg annarri háðsherferð, #Bald4Bieber, sem vakti athygli í október.

Meðal mynda sem birst hafa nú eru myndir af blóðugum handleggjum en aðrir tóku þann pólinn í hæðina að gera grín að háðsherferðinni og svara með því að birta myndir af sjálfum sér að klippa út myndir.

<div> </div>
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson