Bert og Ernie út úr skápnum?

Félagarnir Bert og Ernie eru á forsíðu The New Yorker …
Félagarnir Bert og Ernie eru á forsíðu The New Yorker þessa vikuna. The New Yorker

Teiknimyndapersónurnar þekktu, Bert og Ernie frá Sesamstræti, prýða forsíðu nýjasta eintaki tímaritsins New Yorker. Á myndinni má sjá þá félaga sitja í sófa og horfa á sjónvarpið. Ernie hallar sér upp að Bert og heldur utan um hann. Fyrirsögn greinarinnar í blaðinu er Bert and Ernie´s „moment of joy“, eða Gleðistund Bert og Ernie. Ætla má að hér sé vísað í þau gleðitíðindi sem bárust samkynhneigðum í Bandaríkjunum í vikunni þegar Hæstiréttur Bandaríkjanna heimilaði hjónabönd samkynhneigðra. 

„Það er ótrúlegt að verða vitni af því hvernig viðhorf gagnvart samkynhneigðum hafa þróast á ævi minni,“ segir Jack Hunter, en hann teiknaði forsíðumyndina að þessu sinni. „Þetta er gleðistund.“ 

Lengi hafa verið uppi vangaveltur um kynhneigð þessa ágætu sambýlinga og hefur myndin blásið lífi í þær umræður á ný. 

Frétt New Yorker. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson