Game of Thrones kom Íslandi á kortið

Hafþór Júlíus Björnsson fór með hlutverk illmennisins The Mountain í …
Hafþór Júlíus Björnsson fór með hlutverk illmennisins The Mountain í Game of Thrones mbl.is/Golli

Sjónvarpsþættirnir vinsælu Game of Thrones hafa gert Ísland að einum heitasta áfangastað ástralskra ferðalanga ef marka má frétt á vef The Australian. Þar kemur fram að bókunum á Íslandsferðum hafi fjölgað um 440 prósent hjá landsmönnum í ár, en tölfræðin er fengin hjá bókunarsíðunni Student Flights.

Fimmta þáttaröð Game of Thrones var að miklu leyti tekin upp á Íslandi, en jafnframt fór kraftajöturinn íslenski Hafþór Júlíus Björnsson þar með hlutverk illmennisins The Mountain.

Þá er m.a. bent á að stjörnuparið Beyonce Knowles og Jay Z hafi deilt myndum af Íslandsferð á dögunum, en eins og frægt er orðið hélt sá síðarnefndi upp á 45 ára afmæli sitt hérlendis fyrr í mánuðinum. 

Fleiri ólíklegir ferðamannastaðir hafa notið vinsælda meðal Ástrala, en þar má m.a. nefna borgina Albuquerque í Nýju-Mexíkó fylki Bandaríkjanna þar sem hinir geysivinsælu Breaking Bad þættir fara fram. Talað hefur verið um “Breaking Bad-áhrifin”, en ferðum Ástrala til borgarinnar fjölgaði um 900 prósent samkvæmt fréttinni.

Fréttir mbl.is:

Íslandsferð Beyoncé í myndum

Ógleymanleg stund í Game of Thrones

Stjörnuparið Beyoncé og Jay Z héldu upp á 45 ára …
Stjörnuparið Beyoncé og Jay Z héldu upp á 45 ára afmæli hins síðarnefnda á Íslandi AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson