Þunguninni fylgja viðskiptatækifæri

Kylie Jenner á von á sínu fyrsta barni.
Kylie Jenner á von á sínu fyrsta barni. AFP

Það hefur líkast til ekki farið fram hjá mörgum að ungstirnið og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner á von á sínu fyrsta barni. Þá er móðir hennar sögð vera farin að velta viðskiptahugmyndum tengdum þunguninni fyrir sér.

Samkvæmt frétt Daily Mail sér höfuð fjölskyldunnar, Kris Jenner, sér leik á borði og er nú að velta fyrir sér að hefja framleiðslu á meðgöngufatnaði í samstarfi við Kylie. Yngsta systirin er enginn aukvisi þegar kemur að markaðssetningu, en hún sendi frá sér gríðarlega vinsæla snyrtivörulínu fyrir skemmstu.

„Kris er svo glöð fyrir hönd Kylie, ekki aðeins vegna þess að von er á nýju barnabarni heldur einnig vegna þess að hún sér fyrir sér ný viðskiptatækifæri. Hún er að velta fyrir sér meðgöngutísku fyrir ungar mæður, og er þegar farin að bjóðast til þess að boða til funda,“ er haft eftir ónefndum heimildamanni.

Raunar er Kylie ekki eini meðlimur Kardashian-/Jenner-fjölskyldunnar sem er með barni því í gær var greint frá því að eldri systir hennar, Khloé Kardashian, væri einnig þunguð.

Frétt mbl.is: Khloé líka ólétt

Jenner græddi á tá og fingri þegar hún sendi frá …
Jenner græddi á tá og fingri þegar hún sendi frá sér línu af varalitum.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú geislar af hamingju og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir liggur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg