Cowell datt niður stiga

Simon Cowell.
Simon Cowell. AFP

Simon Cowell datt niður stiga á heimili sínu í London og gat ekki verið viðstaddur fyrstu beinu útsendingu nýjustu þáttaraðar hæfileikaþáttarins X Factor. 

„Þið gætuð hafa tekið eftir því að einn dómarann vantar,“ sagði kynnir þáttarins, Dermot O'Leary, við upphaf hans. „Það er af því að Simon var fluttur á sjúkrahús í fyrradag. En hann er í lagi núna og kominn aftur heim. Hann er að horfa á þáttinn. Láttu þér batna, stjóri.“

Hinir þrír dómarar þáttarins, Nicole Scherzinger, Louis Walsh og Sharon Osbourne, óskuðu Cowell einnig góðs bata. O'Leary spurði svo: „Hvert ykkar setti bananahýði efst í stigann?“ Hann sagði dómarana þrjá alla liggja undir grun. Þeir kepptust svo um að koma með vondar fjarvistarsannanir.

Í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar kemur fram að Cowell hafi í raun verið fluttur á sjúkrahús eftir að hann datt á heimili sínu. The Sun hefur eftir honum að það hafi liðið yfir hann með þeim afleiðingum að hann slasaðist.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson