Suður-afríska fyrirsætan Candice Swanepoel sýndi á undirfatatískusýningu Victoria's Secret í lok nóvember. Fáir vissu hins vegar að Swanepoel var ólétt á nærfötunum.
Nú, tæpum mánuði eftir tískusýninguna, er Swanepoel búin að tilkynna að hún sé ólétt. Miðað við myndina sem hún birti á Instagram var hún komin einhverja mánuði á leið á tískusýningunni.
Fyrirsætan, sem er 29 ára gömul, gekk tískupallinn í tíunda skipti í Sjanghæ í nóvember og þeir voru ekki margir sem tóku eftir óléttukúlunni. Þvert á móti dásamaði fólk það í hversu góðu formi hún var þar sem hún eignaðist sitt fyrsta barn fyrir ári.
A post shared by Candice Swanepoel (@angelcandices) on Dec 15, 2017 at 3:47pm PST