Rómantíska fantasían The Shape of Water í leikstjórn Mexíkóans Guillermos del Toros var valin besta kvikmynd ársins á Producers Guild Awards-verðlaunahátíðinni í gærkvöldi. Myndin hlaut Gullna ljónið í Feneyjum í haust og er tilnefnd til 12 BAFTA-verðlauna.
Hún hlaut fern verðlaun á hátíð kvikmyndagagnrýnenda í Bandaríkjunum nýverið. Meðal annars sem besta kvikmyndin og fyrir besta leikstjórn.
Myndin fjallar um húsvörð á rannsóknarstofu ríkisins á sjötta áratug síðustu aldar sem verður ástafanginn af veru sem er geymd í vatnstanki á rannsóknarstofunni.
Húsvörðurinn Elisa Esposito er mállaus eftir hálsáverka sem hún hlaut sem barn og tjáir sig með táknmáli. Hún býr ein í íbúð í Baltimore á tímum kalda stríðsins og starfar hjá leynilegri rannsóknarstofu á vegum hins opinbera.
Komið er með veru sem hefur verið fönguð í fljóti í Suður-Ameríku og er geymd í vatnstanki á rannsóknarstofunni. Veran er froskmaður (humanoid amphibian) og mynda þau Elisa náin tengsl.
Margir telja að myndin fái fjölmargar tilnefningar til Óskarsverðlaunanna í ár en hún þykir sú besta sem Toro hefur gert í langan tíma. Tilkynnt verður um óskarsverðlaunatilnefningarnar á þriðjudag.
Guillermo del Toro var ekki viðstaddur verðlaunaafhendinguna í gærkvöldi þar sem hann situr við sjúkrabeð föður síns í Mexíkó.
Myndin Coco var valin besta teiknimyndin en hún fjallar einmitt um dag hinna dauðu í Mexíkó.
Sjónvarpsþáttaröðin The Handmaid's Tale þótti sú besta á PGA-hátíðinni en þáttaröðin hlaut átta Emmy-verðlaun og tvenn Golden Globe-verðlaun.