Mér líkar þetta líf bara mjög vel

Hljómsveitin The Brian Jonestown Massacre var stofnuð í byrjun tíunda …
Hljómsveitin The Brian Jonestown Massacre var stofnuð í byrjun tíunda áratugarins í San Francisco. Hákon er annar frá vinstri.

Tónlistarmaðurinn Hákon Aðalsteinsson hefur gengið til liðs við hina goðsagnakenndu bandarísku rokksveit The Brian Jonestown Massacre sem er leidd af ólíkindatólinu Anton Newcombe. Hákon spilar með sveitinni á tónleikaferðalagi um Bandaríkin og Ástralíu. Hákon, sem hefur verið búsettur í Berlín í nokkur ár, er forsprakki hljómsveitarinnar Third Sound og hefur spilað á gítar með hljómsveitum eins og Singapore Sling og Gunman and the Holy Ghost. Anton Newcombe er mikill Íslandsvinur og eyddi sérstaklega tíma hér á landi á árunum 2007-2009. Hákon og Anton héldu kynnum sínum áfram í Berlín, þar sem sá síðarnefndi hefur einnig búið um árabil.

Hákon er fyrsti Íslendingurinn til að spila með The Brian Jonestown Massacre, hljómsveit sem var stofnuð í San Francisco og öðlaðist frægð á tíunda áratugnum, ekki síst vegna heimildarmyndarinnar Dig! frá árinu 2004. Hún fjallaði um stormasamt samband sveitanna The Brian Jonestown Massacre og Dandy Warhols og hlaut Sundance-kvikmyndaverðlaunin.

Hákon og Anton Newcombe á ferð um Bandarikin.
Hákon og Anton Newcombe á ferð um Bandarikin.

Hákon segist ekki hafa þurft mikinn umhugsunarfrest þegar honum bauðst að ganga til liðs við hljómsveitina. „Anton spurði mig hvort ég væri til í þetta þegar annar meðlimur gat ekki farið með á tónleikaferðalagið af persónulegum ástæðum. Á þeim tíma var ég í frekar ömurlegri tímabundinni vinnu þannig að ákvörðunin var auðveld,“ segir hann.

Samdi lag á nýja plötu Hákonar

Hákon segist hafa kynnst Anton fyrst þegar hann spilaði með íslensku rokksveitinni Singapore Sling. „Við túruðum með Brian Jonestown Massacre bæði í Bandaríkjunum og svo um England. Eftir að ég flutti til Berlínar kynntumst við Anton enn betur og höfum unnið að ýmsum tónlistarverkefnum saman.“

Sveit Hákons, Third Sound, hefur gefið út þrjár plötur en sú síðasta, All Tomorrow‘s Shadows, kom út nýverið. Anton samdi eitt lagið með Hákoni á plötunni. „Þegar við vorum að klára demó upptökur fyrir nýju plötuna sömdum við lag sem við vissum ekki hvað við áttum að gera við. Hvorki ég né gítarleikarinn fundum sönglínu sem passaði. Mér datt í hug að senda Antoni lagið og athuga hvort hann gæti fundið melódíu við það. Hann hafði samband tveimur tímum seinna og var búinn að semja texta og taka upp söng og bæta við stefi. Svona eins og maður gerir,“ segir Hákon. Útkomuna má sjá í nýju Third Sound-lagi og myndbandi sem nefnist „Photographs“.

Skemmtilegast að spila á vesturströnd Bandaríkjanna

The Brian Jonestown Massacre á sér stóran og dyggan hóp aðdáenda og Hákon hefur sannarlega orðið var við það á tónleikaferðalaginu. „Það er fólk sem bíður fyrir utan rútuna okkar tímunum saman bara til að geta gefið Antoni gjafir eða talað við hann. Sjálfur hef ég ekki lent í neinu veseni en alls konar fólk hefur komið og spjallað við mig, bæði mjög furðulegt lið en líka frábært fólk sem hefur verið gaman að kynnast.“

Hákon segir Levitation Festival í Texas hafa verið eitt skemmtilegasta „gigg“ ferðalagsins en einnig hafi verið mjög gaman að spila á vesturströnd Bandaríkjanna, í Portland, San Francisco og Los Angeles. Nú er hann hins vegar staddur í Ástralíu, þar sem sveitin er að hefja tónleikaferðalag sitt.

„Við spilum fyrstu tónleikana hér á morgun í Perth og munum einnig spila á Nýja-Sjálandi. Þessi túr endar 25. júní en svo byrjum við annan túr í Evrópu í ágúst og hann endar ekki fyrr en í október með einhverjum hléum á milli.“

Datt kylliflatur á sviðinu

En hvernig er lífið „á túr?“ Hefur sveitin eitthvað róast í drykkjuvenjum sínum?

„Mér líkar þetta líf bara mjög vel. Tíminn hefur liðið ótrúlega hratt. Menn eru orðnir eldri og sumir drekka bara lítið sem ekkert lengur. Miðað við sögurnar sem ég hef heyrt held ég að þetta sé allt mun rólegra núna en það var áður,“ svarar Hákon.

Versta uppákoma Hákonar hingað til á ferðalaginu var þegar hann var að leika með sveitinni í Los Angeles. „Við vorum að ganga á svið í niðamyrkri og ég var með gítar í hendinni. Ég sá ekki mónitor á sviðinu, datt um hann kylliflatur og braut gítarinn um leið og sviðstjöldin komu upp. En hinir meðlimir bandsins sögðu að þá væri ég loksins orðinn alvörumeðlimur, maður verður víst að gera einhvern skandal á sviði til að vera alvöruhluti af bandinu.“

Hákon ætlar að fara með hljómsveitina sína, Third Sound, á túr um Evrópu í júlí og Fuzz Club Festival í Eindhoven í ágúst og slær því hvergi slöku við. „Okkur langar að koma til Íslands en erum ekki með plön um það ennþá. En ég veit að The Brian Jonestown Massacre langar einnig mjög mikið að koma aftur til Íslands þannig að ef það er einhver tónleikaskipuleggjandi þarna úti að lesa þetta þá er um að gera að hafa samband.“

The Brian Jonestown Massacre á sviði, Hákon er lengst til …
The Brian Jonestown Massacre á sviði, Hákon er lengst til hægri.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson