Leikarinn Kiefer Sutherland hefur náð að halda einkalífinu fyrir utan sviðsljósið. Daily Mail greinir frá því að í gær, miðvikudag, hafi hann sést í fyrsta skipti með kærustu sinni, Cindy Vela, meðal almennings. Sambandið er þó allt annað en nýtt af nálinni.
Fyrir rúmu ári komst upp um sambandið en þá hélt Page Six því fram að parið væri búið að vera saman í um þrjú ár. Einnig kom þar fram að Vela sem er 39 ára gömul leikkona væri flutt inn með Sutherland sem er 51 árs.
Vela hefur verið dugleg að birta myndir af sér með kærastanum og virðist ekkert vera að leyna sambandinu þrátt fyrir að sérfræðingar í ástarmálum stjarnanna hafi komist seint á snoðir um sambandið.