Lögreglan í Flórída í Bandaríkjunum hefur nú nafngreint fjóra menn sem hún telur vera ábyrga á morðinu á rapparanum XXXTentacion. Tveir þeirra, Dedrick D. Williams og Michael Boatwright eru í haldi lögreglu. XXXTentacion var skotinn til bana fyrir utan mótorhjólaverslun 18. júní síðastliðinn. Mennirnir sem lögreglan leitar nú að eru Robert Allen og Trayvon Newsome.
Lögreglan telur Boarwrigth og Newsome hafi hleypt af byssunum sem bundu enda á líf XXXTentacion en að Allen og Williams hafi verið vitni að því.