Rithöfundurinn V. S. Naipaul, sem hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 2001, lést á heimili sínu í Lundúnum í dag, 85 ára að aldri.
Naipaul, sem fæddist í Trinidad árið 1932, skrifaði yfir 30 skáldsögur. Hann hlaut Booker verðlaunin árið 1971 og Nóbelsverðlaunin þrjátíu árum síðar. Þekktasta skáldsaga hans var A House for Mr Biswas.